Innlent

Leita aftur ríkisborgararéttar

Japönsk stjórnvöld útilokuðu í gær að Bobby Fischer, skákmeistari, fengi að fara til Íslands. Vinir Fischers reyna enn að fá allsherjarnefnd Alþingis til að mæla með að honum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Yfirmaður japanska innflytjendaeftirlitsins, Masaharu Miura, segir að Fischer verði einungis fluttur til þess lands þar sem hann er ríkisborgari. Þetta kom fram í yfirheyrslu þingnefndar japanska þingsins sem tók málið upp að beiðni eins þingmanna stjórnarandstöðunnar. Hann sagði þetta vera samkvæmt japönskum lögum og að mál Fischers væri ekki þess eðlis að hægt væri að veita honum undanþágu. Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrverandi formaður Skáksambandsins, er einn vina Fischers sem er nýkominn frá Japan til að reyna að hjálpa skákmeistaranum. Hann segir að samkvæmt þeim upplýsingum, sem stuðningsmenn Fischers hér á landi hafi eftir umræður á japanska þinginu og viðræður við stuðningsmenn Fischers í Japan, séu yfirlýsingar glettilega ákveðnar um að ef Fischer fái ríkisborgararétt komist hann til landsins. Japönsk lög segi að mann sem tekinn sé með ógilt vegabréf skuli senda til þess lands þar sem hann hafi ríkisborgarrétt. Aðspurður hvort þreifað hafi verið á málinu í kjölfar umræðu á japanska þinginu segir Guðmundur að reynt hafi verið að ræða málið við nefndarmenn í allsherjarnefnd Alþingis og þeir beðnir að taka málið upp aftur. Tíminn sé naumur en viðræður um þetta standi enn. Machimura, utanríkisráðherra Japans, vísar því á bug að ríkisstjórn Japans gangi erinda Bandaríkjastjórnar í málinu en þingmaðurinn sem óskaði eftir umræðunum lét í ljós þá skoðun sína í gær að meðferð japanskra stjórnvalda á Fischer gæti stefnt tilraunum Japans til að fá sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í hættu. Lögfræðingur Fischers lýsti því yfir í síðustu viku að mál yrði höfðað á hendur japönskum stjórnvöldum ef Fischer yrði ekki fljótlega leystur úr haldi.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×