Innlent

Bregðast ekki við

Yfirvöld hafa ekki brugðist við kæru stéttarfélagsins Eflingar frá því í haust á hendur byggingafyrirtækisins Perlunnar, sem er í eigu Eysteins Gunnars Guðmundssonar. Þetta segir Sigurður Bessason, formaður Eflingar. Sex Litháar sögðu frá því í haust að 25 útlendingar hefðu starfað hjá Perlunni án atvinnu- og dvalarleyfa. Málið var kært til lögreglunnar í Reykjavík, Vinnumálastofnunar, Félagsmálaráðuneytisins og Dómsmálaráðuneytisins 24. nóvember. Svar barst frá Félagsmálaráðuneytinu 28. janúar og Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1. febrúar. Bæði ráðuneytin vísa málinu frá sér þar sem það sé til rannsóknar hjá lögreglunni. "Þrír til fjórir starfsmenn voru handteknir. Þeir hafa verið í vinnu og ekkert gerst í þeirra málum. Þegar við höfðum aftur samband í febrúar þá var málið enn á borði lögreglu. Við erum að reyna að verja lífskjör en á sama tíma bregðast ráðamenn ekki við kæru. Rannsókn sem á sér stað mörgum mánuðum seinna er málamyndarannsókn," segir Sigurður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×