MÍR húsið rifið í haust 1. mars 2005 00:01 "
Við flytjum í haust," segir Ívar H. Jónsson, formaður Félagsins MÍR, sem um árabil hefur haldið uppi menningartengslum Íslands og Rússlands. Í tæp tuttugu ár hefur félagið haft aðsetur í húsinu númer 10 við Vatnsstíg í Reykjavík og staðið fyrir fjölda viðburða á menningarsviðinu. Hin síðari ár hefur starfsemin þó einkum falist í sýningum á gömlum rússneskum kvikmyndum á sunnudögum. Félagið seldi húsið fyrir skemmstu og hefur kaupandinn í hyggju að rífa það og byggja nýtt. MÍR mun þó ekki leggja upp laupana, síður en svo, það flyst að Hverfisgötu 105 og heldur starfseminni áfram. "Það verður eftirsjá af Vatnsstígnum, sérstaklega af bíósalnum," segir Ívar sem á sínum tíma tók þátt í kaupunum á Vatnsstígnum og lagði sitt að mörkum eins og fjöldi félagsmanna við að gera húsið upp. "Þetta var í niðurníðslu," segir hann þegar hann rifjar upp ástand hússins á sínum tíma. Saga Mír stendur á gömlum merg þó að starfsemin hafi tekið breytingum gegnum árin og nokkrum sinnum legið við andláti félagsins. Sovétvinafélag Íslands var stofnað 1932 og starfaði í sex ár. 1950 var svo blásið til stofnfundar Menningartengsla Íslands og Ráðstjórnarríkjanna, MÍR, og urðu félagsmenn fljótlega vel á annað þúsund. Halldór Kiljan Laxness var fyrsti forseti félagsins og Þórbergur Þórðarson varaforseti. Eftir innrás Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu 1968 voru uppi raddir um að leggja bæri félagið niður en af því varð ekki. Aftur heyrðust þessar raddir með falli Sovétríkjanna 1991 en aftur var andlátinu afstýrt. Ívar segir starfsemina hafa breyst mikið með árunum og hún sé til dæmis ósköp lítil miðað við það sem hún var 1985 þegar flutt var á Vatnsstíginn. "Það eru aðallega kvikmyndasýningarnar sem halda samhengi í félagsstarfinu." Myndirnar eru flestar á filmum og hafa verið sýndar með sovéskum sýningarvélum. Ekki er aðstaða í nýja húsinu til að setja vélarnar upp og verða kvikmyndir því sýndar af myndböndum og DVD-diskum í nýjum húsakynnum MÍR við Hverfisgötuna. Ívar segir óráðið hvað gert verði við vélarnar góðu, þeim hafi ekki verið ráðstafað.
Fréttir Innlent Mest lesið Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Innlent Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Innlent Sprengjuflugvélar loga víða í Rússlandi Erlent Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn Innlent Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Innlent Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ Innlent „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ Innlent Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Innlent „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Innlent Fleiri fréttir Stærsta brautskráning í sögu skólans Einn lagður inn á sjúkrahús eftir tónleikana Gengst við eftirlíkingunum: „Ég þekki ekki þessi lög og seldi þessar myndir ekki“ „Okkur þykir það mjög miður að þessar aðstæður hafi skapast“ „Hann vildi ekki klaga, klaga hvern þá?“ Stefnir í metkjörsókn í pólsku forsetakosningunum Viðvaranir vegna snjókomu og hríðar: „Þetta eru mikil vonbrigði“ Útlendingaandúð sé vinsæl leið til að marka sér stöðu á samfélagsmiðlum Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Stutt pása hleypti öllu í bál og brand Fór ekki út úr húsi eftir afsögnina Troðningur í Laugardalshöll, óveður og sjómannadeginum fagnað Landsmálin, fiskveiðistjórnun og Ásthildur Lóa í Sprengisandi Lýsa miklum troðningi, átökum og gráti á FM95BLÖ Brot á vopnalögum og líkamsárás á tónleikum Tveir löðrungar og fall líklega ekki orsök andlátsins Þrír fluttir á bráðamóttökuna af tónleikum FM95BLÖ Tékknesk herþota hluti af árlegri flugsýningu Kosti tugi milljóna að hirða yfirgefin húsgögn „Fallegur dagur“ fyrir útskrift Banaslysið haft áhrif á undirbúning manngerðra íshella Sagðist ekki hafa orðið var við átök: „Ég var eins og pabbi þeirra“ Gamlir Fóstbræður sungu fyrir Njál og hans fólk á Bergþórshvoli Einn fékk rúmar fimmtíu milljónir Lengri opnunartímar sundlauga taka gildi „Við erum engir rasistar“ Kolmónoxíðeitrun talin vera orsök veikinda í flugvél Hasar á tvöföldum mótmælum, flugsýning og tryllitæki í beinni Liggur þungt haldinn eftir stórfellda líkamsárás í Hlíðunum Nikótínþurfi guðsbarn braust inn í Bjarnabúð Sjá meira