Erlent

Saddam í búri í réttarhöldum

Saddam Hussein verður látinn sitja í búri á meðan réttað verður yfir honum að sögn æsifréttablaðsins Sun. Í blaðinu í gær birtust myndir af réttarsalnum eins og hann á að líta út þegar réttað verður yfir Saddam. Í miðjum salnum verður búr í anda þess sem hýsti Hannibal Lecter í myndinni Lömbin þagna. Inni í því verður Saddam á meðan á réttarhöldunum stendur. Öryggisgæsla verður gríðarleg og segja þeir sem til þekkja að réttarsalurinn muni verða öruggasti staður í Írak.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×