Kostnaðaráætlun Vegagerðinnar raunhæf 29. janúar 2005 00:01
Vegamálastjóri er ekki í neinum vafa um að kostnaðaráætlun Vegagerðinnar vegna jarðganga til Eyja sé raunhæf. Hún er helmingi hærri en áætlun sænska fyrirtækisins NCC. Hann segir muninn geta falist í því að NCC miði við aðstæður í Færeyjum en ekki á Íslandi. Vegagerðin gerði kostnaðaráætlun sem var miðuð við 18 kílómetra löng göng milli Landeyja og Vestmannaeyja sem hljóðaði upp á 30 milljarða. Samkvæmt áætlun sem Árni Johnsen segist hafa fengið hjá sænska fyrirtækinu NCC yrði kostnaðurinn þó ekki nema 16 milljarðar. Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri segist ekki geta útskýrt þennan gríðarlega mikla mun. Um sambærileg göng er að ræða, jafnlöng og á sama stað. Hann telur helst að NCC gefi sér aðrar forsendur en Vegagerðin. Í plöggum NCC komi fram að fyrst og fremst sé miðað við verð á göngum í Færeyjum þar sem berg er þéttara og þörf á minni styrkingu. Árni Johnsen hefur sagt um 16 milljarða áætlun NCC að loksins sé um að ræða raunhæfar tölur. Vegamálastjóri velkist þó ekki í vafa um að kostnaðaráætlun Vegagerðinnar sé raunhæf og stendur fyllilega við hana. Sumum er þó nákvæmlega sama hvort göng til Eyja kosti 16 eða 30 milljarða og hafa mun meiri áhyggjur af því hversu örugg þau yrðu. Göngin yrðu með þeim lengstu í veröldinni og einnig í nágrenni við eldvirkt svæði, þótt ekki sé talið að þau muni liggja í gegnum eldstöð. Vegamálastjóri segir að þótt fólki finnist þetta mikið og stórt gat þá sé þetta eins og að stinga títiprjón í vegg miðað við bergmassann sem þarna er.
Fréttir Innlent Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Innlent Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Fleiri fréttir Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar „Enn ein viðurkenning að það má brjóta á fötluðu fólki“ Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Bíða niðurstaðna um magakveisuna á Laugarvatni Dómurinn vonbrigði en virkjunin ekki út úr myndinni Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Hvammsvirkjun í uppnámi og ókyrrð hjá Play Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Inga Sæland með galsa á þingi í nótt „Orðaskiftismetið tikið“ Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Ungt fólk notar frekar samfélagsmiðla en hefðbundna fréttamiðla Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu „Þú ert mögulega búin að nota gagnaver 400 sinnum síðan í morgun“ Kjarnorkukafbátur í höfn í fyrsta sinn Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Fluttur á bráðamóttöku með áverka á höfði eftir líkamsárás Segir stjórnina ekki standa við stóru orðin í orkumálum „Kannski var þetta prakkarastrik“ Sjá meira