Innlent

Dettifoss: Taugin slitnaði

Taugin á milli varðskipsins Týs og Dettifoss slitnaði um fjögurleytið í dag þegar þau voru stödd um 22 sjómílur frá Reyðarfirði. Týr var á leið í land með Dettifoss eftir að stýrisblað skipsins brotnaði í gærkvöldi þegar það var statt út af Lóni, austan við Hornafjörð. Engin hætta var talin á ferðum þar sem skipið rak frá landi en óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Týr var komið á staðinn skömmu síðar en björgun gekk brösuglega. Fyrsta dráttartaugin slitnaði en þegar búið var að koma nýrri taug á milli skipanna, klukkan rúmlega fjögur í nótt, var orðið það hvasst að Týr réð ekki við að draga skipið. Því var ákveðið að bíða þar til veður lægði sem gerðist ekki fyrr en nú síðdegis. Varðskipið Ægir, sem kallað var til aðstoðar í morgun, er með í för. Verið er að reyna að koma nýrri taug yfir í Dettifoss en að sögn Landhelgisgæslunnar er mjög hvasst á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×