Stýrið brotnaði af Dettifossi. 29. janúar 2005 00:01
Stýrisblað á Dettifossi, flutningaskipi Eimskipafélagsins, brotnaði af skipinu í fyrrakvöld austur af landinu. Varðskipið Týr kom til aðstoðar seint í fyrrakvöld og tók Dettifoss í tog. Aðstæður voru mjög erfiðar á þessum slóðum vegna hvassviðris og sjógangs. Dráttartaug milli skipanna slitnaði í fyrrakvöld og aftur í gærdag. Það var um klukkan átta á föstudagskvöld þegar forsvarsmenn Eimskips báðu um aðstoð Landhelgisgæslunnar þar sem Dettifoss lét ekki að stjórn. Þá var skipið statt átta sjómílur austur af Eystrahorni en skipið var á leið frá Reykjavík til Eskifjarðar. Um tveimur tímum síðar mætti Týr Dettifossi þar sem skipið rak frá landi. Skipin héldu sjó um átján sjómílur austur af Papey og taug sem tókst að koma í Dettifoss slitnaði skömmu fyrir miðnætti. Varðskipið Ægir kom einnig á staðinn um klukkan hálf ellefu í gærmorgun. Um klukkan hálf þrjú í gærdag lagði Týr af stað með Dettifoss með stefnu á Eskifjörð eftir að hafa komið taug yfir í skipið. Síðdegis slitnaði hún vegna veðurs, en þar voru um 23 til 24 metrar á sekúndu, of vont veður til að reyna að koma línu aftur á milli skipanna. Að sögn manna um borð í Dettifossi var áhöfninni nokkuð brugðið þegar í ljós kom að skipið var stjórnlaust í vondu veðri. Viðmælandi blaðsins sagði líðan áhafnarinnar eftir atvikum. Skemmdir á Dettifossi verða kannaðar á Eskifirði og að því loknu verði tekin ákvörðun um hvar viðgerð fer fram.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Sjá meira