Innlent

Týr með Dettifoss í togi

Varðskipið Týr lónar nú um 18 sjómílur austur af Papey með bilaðan Dettifoss í togi og kemst hvorki lönd né strönd vegna veðurs. Stýrið í Dettifossi bilaði í gærkvöldi þegar skipið var statt út af Lóni, austan við Hornafjörð. Engin hætta var talin á ferðum þar sem skipið rak frá landi en óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Týr var komið skömmu síðar en björgun hefur gengið brösuglega. Fyrsta dráttartaugin slitnaði en þegar búið var að koma nýrri taug á milli skipanna rúmlega fjögur í nótt var orðið það hvasst að Týr réð ekki við að draga skipið. Dettifoss er stærsta skip Eimskipar, um 14 þúsund tonn, en til samanburðar er Týr aðeins um 12 hundruð tonn. Í því suðvestan roki og haugasjó sem er á staðnum þá ræður Týr ekki við mikið meira en að halda í Dettifoss. Verið er að bíða eftir varðskipinu Ægi sem búist er við að verði komið á vettvang skömmu fyrir hádegi. Saman gætu varðskipin dregið Dettifoss og eins ætti björgun að ganga um leið og lægir. Spáin er þó áfram slæm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×