Linnulausar árásir í Írak 26. janúar 2005 00:01 MYND/AP
Einhver hættulegasti vegarkafli heims var eitt skotmarka hryðjuverkamanna í Írak í morgun. Endalausar árásir hafa dunið á hersveitum og óbreyttum borgurum í nótt og í morgun. Vegurinn frá alþjóðaflugvellinum í Bagdad, sem áður hét Saddam-flugvöllur, og inn í bæ er hættulegasti vegspotti í Írak og með þeim verstu í heimi. Klukkustundarlangt ferðalagið kostar fúlgur fjár vegna þeirrar verndar sem veitt er. Fólk er flutt í brynvörðum bílum sem ferðast nokkrir saman á ofsahraða. Þrátt fyrir þessar öryggisráðstafanir og gæslu tókst uppreisnarmönnum í morgun að gera sprengjuárás á herbílalest á veginum. Engar fregnir hafa borist af mannfalli og Bandaríkjaher hefur ekki gefið frá sér frekari upplýsingar. Árásir í Írak eru svo margar á dag að það er nánast eins og upptalning að fara yfir þær allar. Í morgun gerðu uppreisnarmenn árás á skrifstofur þriggja stjórnmálahreyfinga í Bakúba. Þar særðust átta stjórnmálamenn og lögreglumaður féll. Í Kirkúk sprungu tvær bílsprengjur. Fregnir bárust af bardögum milli bandarískra hersveita og uppreisnarmanna í Ramadi. Í Bagdad sprungu tvær sprengjur í nótt í skólum sem nota á sem kjörstaði á sunnudaginn kemur. Hersveitir fundu samtals sex sprengjur í Bagdad og gerðu óvirkar og í Najaf fundu írakskar sveitir tvær sprengjur. Í Mósúl sendu uppreisnarmenn frá sér myndbandsupptöku með þremur Írökum sem segjast vera starfsmenn kjörstjórnar. Uppreisnarmenn segja kosningarnar ekki eiga sér neina stoð í íslömskum sið og því sé réttmætt að gera árásir á allt sem þeim tengist. Bráðabirgðastjórn Íraks hefur gripið til víðtækra aðgerða til að reyna að sporna við slíkum árásum. Meðal annars verður flugvellinum í Bagdad lokað eins og öllum landamærum, útgöngubönn verða lengd í helstu borgum og umferð bíla verður bönnuð á kjördag.
Erlent Fréttir Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira