Hryðjuverk eða samsæri? 15. febrúar 2005 00:01
Hryðjuverk eða samsæri leyniþjónusta er spurningin sem brennur á íbúum Líbanons í dag. Reiði og tortryggni ríkir vegna morðsins á fyrrverandi forsætisráðherra landsins. Ýmislegt bendir til þess að það hafi verið hryðjuverkamaður í sjálfsvígsför sem réð Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, bana í gær, að sögn innanríkisráðherra Líbanons. Talið er að um 300 kíló af sprengiefni hafi verið í bíl sem sprengdur var í loft upp rétt við bílalest forsætisráðherrans fyrrverandi. Íslamskir öfgamenn lýstu tilræðinu á hendur sér í gær en í dag þvoði al-Qaida hendur sínar af verknaðinum og sagði sýrlensku, líbönsku eða ísraelsku leyniþjónustuna að verki. Öfgamennirnir sögðu tengsl Hariri við Sádi-Arabíu ástæðuna en hann bjó þar um árabil og var enn ríkisborgari þess lands á forsætisráðherratímanum. Hariri hafði hins vegar amast við Sýrlendingum og veru hermanna þeirra í Líbanon, sem gæti hafa reitt þá til reiði. Ólíklegt þykir að innanlandsátök séu ástæðan þar sem stjórnmál í Líbanon hafa verið fremur friðsamleg eftir að borgarastyrjöldinni lauk þar árið 1990. Engu að síður eru yfirvöld á varðbergi og herinn í viðbragðsstöðu. Sorg og reiði settu mark sitt á daginn í dag. Ghazi Aridi, líbanskur þingmaður, sagði að líbönsk stjórnvöld bæru fulla ábyrgð á því sem gerst hefði í landinu, allt frá tilræðinu við Marwan Hamadeh ráðherra fyrir nokkrum mánuðum. Tilraunir hefðu verið gerðar til að takmarka frelsi og málfrelsi þjóðarinnar, lög og stjórnarskrá hefðu verið brotin, mannréttindabrot hefðu viðgengist og nú loks væri Hariri ráðinn af dögum. Spennan í landinu magnast en stefnt er að þingkosningum í vor.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fleiri fréttir Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Sjá meira