Seljum óveður og myrkur
Íslendingar eiga að selja óveðrið og myrkrið til að fá ferðamenn um vetrartímann, segir ráðgjafi í ferðaþjónustu. Bent er á hið ótrúlega afrek Finna, sem tekst að fá þrjár milljónir ferðamanna árlega til Lapplands, Norðan Heimskautsbaugs, og flesta um hávetur.