Huga þarf að heimildum í lögum 17. apríl 2005 00:01
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar, segir vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig í fyrirætlunum um að koma upp "svörtum lista" yfir flugdólga. Almar Örn Hilmarsson, framkvæmdastjóri Iceland Express, viðraði hugmyndina í kjölfar þess að sex farþegar létu dólgslega í flugi til Kaupmannahafnar um helgina. "Ætli sér einhver að koma sér upp slíkum lista þarf hann að ganga úr skugga um að heimild sé til þess í lögum. Skilgreina þarf í hverju felst að vera flugdólgur og ákveða hvernig nota á upplýsingarnar. Síðan þarf að huga að því hvernig notkunin passar við heimildarákvæði laga um meðferð persónuupplýsinga," segir hún og bendir á að í gildandi lögum sé gert ráð fyrir vanskilaskrám og um þær skýrar reglur. "Það eru hins vegar engar sérreglur til um dólgaskrár." Hún segir ýmsa hafa haldið úti svörtum listum, til dæmis myndbandaleigur og fleiri. "En þar er alltaf verið að tala um upplýsingar af fjárhagslegum toga." Sigrún segir þó ekkert koma í veg fyrir að flugfélög komi sér upp svörtum lista yfir flugdólga. "En ef einhver kvartaði yfir veru sinni á slíkri skrá og við kæmumst að því að heimildir skorti. þá höfum við valdheimildir til að grípa inn í."
Fréttir Innlent Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira