Tveggja enn saknað af Jökulfelli 8. febrúar 2005 00:01
Fjórir hafa fundist látnir og tveggja manna er enn saknað eftir að fraktskipinu Jökulfelli hvolfdi skammt frá Færeyjum í fyrrakvöld. Leit var hætt klukkan hálf fjögur í gær vegna vonsku veðurs og myrkurs. Fimm skipverjanna var bjargað um borð í þyrlu sem tilheyrir danska eftirlitsskipinu Vædderen. Fimmmenningunum heilsaðist vel og gátu þeir gengið frá þyrlunni hjálparlaust. Jökulfell var statt 56 sjómílur norðaustur af Færeyjum þegar skipinu hvolfdi. Ellefu eru í áhöfn skipsins, þrír Rússar og átta Eistar, allir búsettir í Eistlandi. Þeir sem komust lífs af voru allir í flotgalla en talið er að skipinu hafi hvolft á örfáum mínútum. Þeir sem fórust og þeir sem enn eru tíndir eru taldir annað hvort ekki hafa komist í flotgalla eða úr skipinu í tæka tíð. Samkvæmt upplýsingum frá færeysku landhelgisgæslunni er ekki búið að gefa upp alla von að þeir sem enn eru ófundnir séu á lífi en líkurnar eru taldar litlar. Skipið er í eigu eistneska fyrirtækisins Tesma, er skráð á eynni Mön en er leiguskip Samskipa. Þar sem skipið er skráð á Mön er það þeirra að rannsaka hvað olli sjóslysinu. Samkvæmt upplýsingum frá hafsöguyfirvöldum á Mön lentu tveir menn á þeirra vegum í Færeyjum seinni partinn í gær. Hann sagði framburð þeirra sem komust af skipta mestu þar sem sönnunargögn eru sokkin í sæ. Flugvél íslensku Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, fór og aðstoði við leit í gær. Athugað verður nú í morgunsárið hvort og þá hvenær leit verður framhaldið. Hætta varð leit í gær vegna erfiðra leitarskilyrða, mikils hvassviðris og ölduhæðar, auk þess var myrkur að skella á. Sjálfvirkt neyðarkall barst frá skipinu klukkan rúmlega átta í fyrrakvöld og var reynt að ná talstöðvarsambandi við skipið í framhaldinu en án árangurs. Ekki tókst heldur að ná sambandi í símleiðis. Um klukkan níu um kvöldið voru skip á svæðinu beðin um að sigla að þeim stað þar sem skipinu hvolfdi. Rétt fyrri klukkan ellefu var þyrla frá Vædderen að hífa skipverjana sem björguðust um borð. Skipið sökk síðan rétt eftir miðnætti. Jökulfell var að koma frá Liepaja í Lettlandi á leið til Reyðarfjarðar og Reykjavíkur með tvö þúsund tonn af stáli og almennan farm.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Innlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Fleiri fréttir Virkjuðu viðbragðsáætlun vegna flugslyss Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Sjá meira