Tveggja enn saknað 8. febrúar 2005 00:01
Fjórir skipverjar á flutningaskipinu Jökulfelli fórust þegar skipið sökk skammt frá Færeyjum í nótt. Fimm var bjargað. Tveggja er enn saknað en leit hefur verið hætt vegna veðurs. Það var um klukkan átta í gærkvöldi, þegar Jökulfellið var statt um sextíu sjómílur norðaustur af Færeyjum, sem því hvolfdi. Ekkert liggur enn fyrir um tildrög slyssins enda náðist aldrei talstöðvarsamband við skipstjórnarmenn eftir að sjálfvirkur neyðarsendir um borð fór í gang. Ýmislegt bendir því til þess að skipið hafi oltið á skammri stundu, eða innan við fimm mínútum. Sex metra ölduhæð var á svæðinu þegar slysið varð og vindur 15 metrar á sekúndu sem að öllu jöfnu hefði ekki átt að ógna öryggi skipsins. Það var lestað tvö þúsund tonnum af stáli en gat borið mun meira og var því ekki oflestað. Tveimur tímum eftir að skipinu hvolfdi komu björgunarþyrlur á staðinn og maraði skipið þá í kafi. Um miðnætti var það sokkið. Fljótlega eftir að björgunarþyrlur komu á vettvang tókst að bjarga fimm skipverjum en þeir höfðu allir komist í flotbúninga. Þyrla úr danska varðskipinu Vedderen bjargaði þeim og er skipið á leið til Færeyja með mennina. Að sögn varðstjóra í björgunarmiðstöðinni í Þórshöfn fengu allir skipverjarnir björgunargalla en óvíst er hvort að þeir hafi allir komist frá skipi. Mannlaus gúmmíbátur fannst á floti nokkru síðar en síðan klukkan þrjú í nótt hafa ekki fundist fleiri skipverjar á lífi. Lík af fjórum skipverjum höfðu fundist skömmu fyrir hádegi. Tveggja er enn saknað en leit að þeim var hætt síðdegis þar sem veður á svæðinu er mjög slæmt. Strax í gærkvöldi var óskað aðstoðar íslenskra björgunaryfirvalda og var Fokker-vél Landhelgisgæslunnar þegar send af stað með tveimur mönnum frá Flugbjörgunarsveitinni. Hún sneri aftur hingað til lands síðdegis. Jökulfell var í fraktflutningum fyrir Samskip en í eigu fyrirtækisins KS Difko Nord, skráð á eynni Mön og í áhöfn voru átta Eistar og þrír Rússar. Það var smíðað árið 1989 í Danmörku.
Fréttir Innlent Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Sjá meira