Bætt fyrir skort á stærðahagkvæmni 8. febrúar 2005 00:01
Áætlun um úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga hefur verið samþykkt af ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Samkvæmt henni verður úthlutað 2.300 milljón krónum á þessu ári. Þessum framlögum er ætlað að mæta mismunandi útgjaldaþörf sveitarfélaga á grundvelli stærðarhagkvæmni þeirra og tekna. Það er Sveitarfélagið Skagafjörður sem fær hæsta framlagið, rúmar 118 milljónir. Skiptir þar mestu fyrir sveitarfélagið tæplega 59 milljóna króna framlag vegna íbúafjölda og tæplega 34 milljóna króna framlag vegna skólaaksturs í dreifbýli. Þá er áætlað að Fljótsdalshérað fái rúmlega 100 milljónir. Þrjú sveitarfélög fá úthlutað yfir hundrað þúsund krónur á hvern íbúa; Bólstaðarhlíðarhreppur, Áshreppur og Hvítársíðuhreppur. Þau eiga það sameiginlegt að vera tiltölulega fámenn sveitarfélög, með 73 til 113 íbúa og dreifbýl. Grímsnes- og Grafningshreppur, Ásahreppur, Fljótsdalshreppur, Skorradalshreppur, Skilmannahreppur, Hvalfjarðarstrandahreppur og Kópavogur eru þau sveitarfélög sem ekkert fá úthlutað að þessu sinni. Af þessum sveitarfélögum er Kópavogur langstærsta sveitarfélagið er þar búa tæplega 26 þúsund manns. Hin sveitarfélögin eru frá Skorradalshrepp með 64 íbúa til Grímsnes- og Grafningshrepps sem hefur 344 íbúa. Framlögin eru skert hjá þeim sveitarfélögum sem hafa hlutfallslega háar tekjur á íbúa miðað við önnur sveitarfélög og á það við þessi sveitarfélög utan Kópavog. Þar sem íbúafjöldi er í Kópavogi er yfir 22.000 falla íbúatengdu framlögin niður. Slík framlög eru skert á grundvelli stærðarhagkvæmni og hefst skerðing þegar íbúar eru fleiri en 2.400. Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélagið, með 21.942 íbúa, þannig að ef íbúum þar fjölgar um fleiri en 58 á árinu, mun sveitarfélagið ekkert fá úthlutað á næsta ári úr þessum lið Jöfnunarsjóðs. Á þessu ári fær Hafnarfjörður rúm 700 þúsund krónur, sem gera um 32 krónur á íbúa. Reykjavík er annað tveggja sveitarfélaga sem fær undir þúsund krónur á íbúa, eða rétt tæpar 47 krónur. Reykjavík fær greitt á grundvelli fjölda þéttbýlisstaða umfram einn, fjarlægða innan sveitarfélags og fyrir skólaakstur í dreifbýli. Aðrar viðmiðanir við útreikning framlaganna er fækkun íbúa og snjómokstur í þéttbýli.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira