Líknarskrá léttir á aðstandendum 8. febrúar 2005 00:01
Tilkoma líknarskrár kemur til með að létta á aðstandendum, sem ella stæðu frammi fyrir því að eiga þátt í ákvarðanatöku um læknismeðferð einstaklings, segir Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Landlæknisembættið er nú að leggja lokahönd á gerð líknarskrár, þar sem fólk getur skráð vilja sinn um læknismeðferð undir ákveðnum kringumstæðum. Það getur til að mynda hafnað því að vera sett í öndunarvél, hjartahnoði eftir áfall og svo framvegis. "Það er engin spurning, að það er afskaplega gott að vita vilja fólks í þessum efnum við tilteknar aðstæður," sagði Sigfinnur. "Því má þó ekki gleyma að fólk getur endurmetið ákvarðanir sínar og stundum kann að vera ástæða til þess. Einstaklingurinn getur ályktað eitthvað þegar hann er við góða heilsu, en síðan breytt um skoðun ef veikindi herja á. En ég tel að það sé gott fyrir alla að hugsa um þessa hluti, hver svo sem ákvörðunin kann að verða." Sigfinnur sagði að þegar teknar væru stórar, læknisfræðilegar ákvarðanir þá væri slík ákvarðanataka í höndum læknisins. Tilgangurinn væri alltaf að nálgast þann sem málið varðaði og vinna það meðal annars út frá þekkingu aðstandenda. Siðfræðilega væri enginn munur á því að hefja ekki meðferð og hætta meðferð. Oft væri erfiðara fyrir aðstandendur að standa frammi fyrir því að gripið væri inn í meðferð, sem þjónaði ekki lífinu. Líknarskráin tekur einnig til vilja fólks varðandi líffæragjafir. Fram hefur komið að kannaður var vilji aðstandenda í þeim efnum á árunum 1992 - 2002. Í ljós kom að um 40 prósent þeirra höfðu hafnað líffæragjöf úr látnum ættingja. "Ég dreg þessar tölur ekki í efa," sagði Sigfinnur. "En það kom sjálfum mér á óvart í upphafi hver gjafmild þjóðin er. Stundum hafa aðstandendur jafnvel orð á þessu að fyrra bragði, ef til vill vegna þess að hinn látni hefur einhvern tíma sagst vilja gefa líffæri eða þá að það fellur vel að persónunni, að vilja gefa af sér. Í þessu sem öðru er best að vita hvað þessi tiltekni einstaklingur vill. Aðalatriðið hlýtur alltaf að vera að sú niðurstaða sem fæst sé rétta niðurstaðan, þannig að fólk kveðji sátt við það sem hefur verið gert. Það þarf að hafa velferð einstaklingsins í fyrirrúmi út yfir gröf og dauða og fara með málefni lífs og liðinna af virðingu."
Fréttir Innlent Mest lesið Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Gátu loks yfirheyrt konuna Innlent Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Innlent „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Innlent Fleiri fréttir Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Sjá meira