Fjögur lík fundin 8. febrúar 2005 00:01
Lík fjögurra sjómanna af flutningaskipinu Jökulfelli sem sökk á leið til Íslands í gærkvöldi fundust á ellefta tímanum í morgun og er nú leitað þeirra tveggja sem enn er saknað. Þrátt fyrir mikla leit í nótt fannst ekkert fyrr en bjart var orðið en skipinu hvolfdi norðaustur af Færeyjum og sökk fyrir miðnætti. Líkin voru tekin um borð í færeyska varðskipið Tjaldinn. Þyrla af danska eftirlitsskipinu Vedderen bjargaði fimm skipverjum sem voru á sundi í sjónum þegar þyrlan kom að. Síðan fannst mannlaus gúmmíbjörgunarbátur en ekkert sást til hinna sex, þar til líkin þrjú fundust í morgun. Skipverjarnir sem þyrlan bjargaði voru það hressir að þeir gengu óstuddir út úr henni eftir að hún lenti á varðskipinu. Vedderen er væntanlegur með þá til Færeyja síðar í dag. Átta skipverjanna eiga ríkisfang í Eistlandi og þrír í Rússlandi. Fokker-vél Landhelgisgæslunnar tekur þátt í leitinni ásamt þyrlu frá Færeyjum og frá Vedderen auk nokkura annarra véla. Veður fer nú heldur versnandi á leitarsvæðinu. Ekkert liggur enn fyrir um tildrög slyssins enda náðist aldrei talstöðvarsamband við skipstjórnarmenn eftir að sjálfvirkur neyðarsendir um borð fór í gang. Ýmislegt bendir því til þess að skipið hafi oltið á skammri stundu, en þó ekki skemmri en svo að skipverjarnir, sem björguðust, höfðu komist í flotbúninga. Sex metra ölduhæð var á svæðinu þegar slysið varð og vindur 15 metrar á sekúndu sem að öllu jöfnu hefði ekki átt að ógna öryggi skipsins. Það virðist hafa marað á hvolfi í 2-3 klukkustundir en um miðnætti var það sokkið. Samskip hefur haft skipið á leigu í rúmt ár og var það lestað 2000 tonnum af stáli sem það átti að flytja frá Lettlandi til Reyðarfjarðar og Reykjavíkur. Skipið gat borið talsvert meiri farm þannig að ekki var það oflestað.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Fleiri fréttir Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Sjá meira