Félagafrelsi sjómanna 12. október 2004 00:01 Félagafrelsi sjómanna og vinnulöggjöfin - Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambandsins Undanfarin áratug hafa sjómenn ítrekað reynt að ná samningum við útvegsmenn en ekki tekist. Útvegsmenn hafa komist upp með það að treysta á að stjórnvöld komi og setji lög sem kveða á um það sem útvegsmenn voru tilbúnir að leggja fram. Allt þetta ár hafa viðræður staðið yfir milli þessara aðila. Grundvallarkrafa sjómanna er fá samskonar lífeyrisréttindi og aðrir landsmenn hafa. Bæði að gjöld í lífeyrisjóði verði reiknuð af heildarlaunum eins og hjá okkur hinum, í dag er það einungis af óverulegum hluta launa sjómanna. Auk þess hafa útgerðarmenn þverskallast við að greiða í séreignarsjóði, eins og niðurstaða varð um í öðrum kjarasamningum á síðasta samningstímabili, og þar til viðbótar fengu sjómenn einir ekki þann séreignarviðauka sem allir aðrir fengu, þegar verið var að leiðrétta forsendur kjarasamninga árið 2002. Sjómann hafa sagt að þeir séu tilbúnir að ræða þau atriði sem útvegsmenn leggja áherslu á, gegn því að þeir fái sömu lífeyrisréttindi og aðrir landsmenn hafa. Ekkert hefur miðað frekar en fyrri daginn. Fyrir skömmu tók sig til útgerðarmaður og gerði tilraun til þess að fá nokkra sjómenn til þess að semja við sig til þess að geta mannað skipið Guðmund úr Nesi. En hann bauð laun og kjör sem voru ekki í samræmi við það sem kveðið er á um í gildandi kjarasamningum og ekkert varð úr þessu. Sami útgerðarmaður gerði svo aðra tilraun með að manna skipið Sólbak. Hann tilkynnti fyrst að hann hefði stofnað nýtt stéttarfélag og gert við það kjarasamning, eins margoft kom fram í fréttum fyrir stuttu. En hann fékkst ekki margumbeðin að sýna þennan kjarasamning. En síðar kom fram engin kjarasamningur hefði verið gerðir, heldur ráðningarsamningar við þá menn sem hann fékk til þess að fara á skipið. Að sögn áttu þessir menn um ekkert annað að velja. Í þessum ráðningarsamningum er m.a. ákvæði um að menn megi ekki vera í stéttarfélagi, þeas útgerðarmaðurinn er sjálfur að taka sér í frelsið til þess að ákvarða hvort menn séu í stéttarfélagi eður ei, samtímis því að hann er í öllum fjölmiðlum hrópandi um félagafrelsi. Hann eignar sjálfur sér það frelsi til þess að ákvarða að sjómenn eigi að hafa skert lífeyrisréttindi, auk þess að ekki er greitt í sjúkrasjóð auk allnokkurra annarra atriði sem ekki eru í lagi. En búið er að breyta mönnunarmálum og stoppi í höfnum. Þeas útgerðarmaðurinn er búin að setja inn allar kröfur útgerðarmanna en hafnað kröfum þeirra um leiðréttingu á lífeyrisréttindum og auk þess hirða af þeim nokkur atriði til viðbótar, eða með öðrum orðum hann lætur sjómennina greiða sjálfa með sér og hirðir allan hagnaðinn af mönnuninni. Svo einkennilegt sem það nú er þá hefur útgerðarmaðurinn margoft komið fram í fjölmiðla og hrópað hann ásamt öðrum útgerðarfélögum liggi undir ofsóknum og það eina sem hann vilji leggja áherslu á sé félagsfrelsi!! Hans eina takmark sé að fá að greiða sínum mönnum hærri laun og vernda fjölskyldulíf þeirra!! Út yfir allan þjófabálk gekk svo kollegi hans fá Akureyri með málflutning sinn í fjölmiðlum í gær. Þeir eru svo að vitna til um að þeir vilji bara fá sama umhverfi og önnur fyrirtæki hafi. Sjómannaforystan sé steinrunnin og hún standi í veginum. Hvers lags endaleysa er þetta, maður er gáttaður á því að fréttamenn skuli leyfa þeim að komast óáreittir upp með svona rökleysu. Ég get vitnað um það að líklega eru hvergi fleiri sérsamningar við fyrirtæki og við starfsmenn í gangi en í rafiðnaðargeiranum. En þeir eru allir byggðir á grunni gildandi kjarasamnings RSÍ og SA. Engum dettur í hug að fara undir þann samning. Enda er þa> ð viðurkennt innan rafiðnaðargeirans og hefur margoft komið fram að RSÍ getur farið fram og hefur reyndar gert það, að innheimta það sem upp á vantar bæði hjá innlendum og erlendum fyrirtækjum og komið því til viðkomandi starfsmanns. Þá gildi einu um hvað starfsmaðurinn hafi undirritað, hann má klárlega ekki semja um lakari kjör en eru í gildandi kjarasamning um viðkomandi starf. Til viðbótar er rétt að taka það fram, það skiptir engu hvort viðkomandi starfsmaður sé í stéttarfélagi eður ei og sama gildir um viðkomandi fyrirtæki. Sólbaksmálið snýst ekki um félagafrelsi, því fer víðs fjarri. Öll vitum við að starfsmenn og eða starfsmannafélög geta gert sérsamninga og það er gert um allan vinnumarkaðinn og örugglega á einhverjum skipanna. En það eru í gildi landslög sem kveða á um að lágmarkskjör þessara sérsamninga mega ekki kveða á um lakari kjör en lágmarkskjör i gildandi kjarasamningum viðkomandi starfsgreinar. Eins eru í gildi lagaleg ákvæði um fyrirkomulag viðræðna um endurnýjun kjarasamninga og með hvaða hætti hvernig íhlutun aðila getur verið. T.d. geta starfsmenn ekki sett af stað verkföll eins og þeim sýnist, og fyrirtæki geta ekki klofið einhverja nokkra einstaklinga frá og stillt þeim upp við vegg og þvingað fram eitthvað fram. Þessi málatilbúnaður á Sólbaki er klárlega brot á gildandi lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Það er skelfilegt að bæjaryfirvöld Akureyrarbæjar skuli láta handtaka sjómenn, sem reyndu að verja lögvarin réttindi sín og brjóta með þeim hætti á bak aftur lögmæta kjarabaráttu þeirra. Framferði útgerðarmannsins og ekki síður bæjaryfirvalda Akureyrarbæjar eru af sama sauðahúsi og brotin voru á bak aftur á fyrstu árum síðustu aldar og síðan staðfest í lögum um stéttarfélög og kjaradeilur 1938. Með þessu ótrúlega ósmekklega inngripi er Akureyrarbær að gera sitt til þess að koma í veg fyrir að sjómenn fái samskonar lífeyrisréttindi og aðrir landsmenn hafa. Það má ætla að forsvarsmenn Akureyrarbæjar hafi ekki áttað sig á því að nú eru þeir orðnir beinir aðilar að deilu, sem snýst um grundvallarréttindi íslenskra launamanna. Ný staða er komin upp. Fyrir liggur að mörg stéttarfélög eru að undirbúa endurnýjun kjarasamninga. T.d. er RSÍ að undirbúa samningagerð við Norðurorku, RARIK og Landsvirkjun. Allt eru þetta félög sem Akureyrarbær er stór aðili að. Ef litið er til þeirra viðbragða sem eru að birtast okkur starfsmönnum RSÍ frá félagsmönnum, má næsta örugglega ætla að í komandi viðræðum munu rafiðnaðarmenn stilla sér við hlið sjómanna til að verja og endurheimta réttindi sem við fengum fyrir 80 árum. Einnig er klárt að RSÍ mun beina því til rafiðnaðarmanna að þeir stilli sér ekki við hlið Akureyrarbæjar og útgerðarmannsins í að brjóta á bak aftur sjómenn í baráttu þeirra fyrir eðlilegum mannréttindum með því að fara um borð í Sólbak. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi Skoðun Orðhengilsháttur og lygar Elín Erna Steinarsdóttir Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Skoðun Norðurlandamet í fúski! Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ursula von der Leyen styður þjóðarmorð! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Flugnám -Þriðji hluti: Samtvinnað (Integrated) eða áfangaskipt (Modular) ATPL flugnám Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Ursula Von der Leyen styður stríðsglæpamenn - Ísland á ekki að þegja Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar