Verstu náttúruhamfarir sögunnar 27. desember 2004 00:01
Náttúruhamfarirnar í Suðaustur-Asíu eru þær verstu í sögunni að mati yfirmanns neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna. Óttast er að farsóttir blossi upp á svæðinu þar sem rotnandi lík og hræ liggja í flóðavatninu. Ástandið á flóðasvæðunum gæti enn versnað breiðist far- og drepsóttir út. Tugir þúsunda fórust og fjöldi líka, sem og hræ dýra, liggur á víðavangi, jafnvel á kafi í vatni og rotnar. Víða voru fyrir drulla og skítur sem blandast nú flóðavatninu sem sum staðar hefur komist í vatnsból. Rétt eins og þegar monsúnregn veldur flóðum er hætta á kóleru og öðrum pestum sem geta reynst banvænar. Heilbrigðisstofnanir eru hvergi nærri í stakk búnar til að bregðast við vandanum og eru jafnvel í rúst eftir flóðin. Því er ástandið mjög bágborið. Þó að björgunarmenn og hersveitir keppist við að safna líkum og urða eða koma fyrir með öðrum hætti, hafa þeir ekki undan. Hjálparstofnanir reyna að koma lyfjum og drykkjarvatni til fólks en eiga í kapphlaupi við tímann. Það er ekki síst af þessum sökum sem Jan Egaland, yfirmaður neyðarhjálparstarfs Sameinuðu þjóðanna, segir þetta að líkindum verstu náttúruhamfarir í sögunni þar sem þær bitnuðu á þéttbyggðum svæðum við ströndina sem voru alls ekki undir slíkar hamfarir búin.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent