Neyðarástand í Súdan 30. júní 2004 00:01
Neyðarástand ríkir í Súdan, þar sem þjóðernishreinsanir og þurrkur stofna lífi ríflega milljónar manna í hættu. Alþjóðasamfélagið og hjálparsamtök eru til reiðu, en stjórnvöld í Súdan koma í veg fyrir starf þeirra. Ein komma tvær milljónir manna í Darfur-héraði í Súdan þurfa á neyðaraðstoð að halda. Þar búa einkum svartir Súdanir, en Janjaweed-skæruliðar, sem eru arabar og njóta stuðnings stjórnvalda, hafa hrakið fólkið úr bæjum sínum, brennt þá og ekrur fólksins, eyðilegt vatnsbrunna og drepið tugi þúsunda fólks. Fullyrt er að jaðri við þjóðernishreinsanir. 700 þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna bardaga. Í dag kemur Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Darfur og Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, er í höfuðborg Súdans, Khartoum. Báðir hafa varað stjórnvöld þar við og látið í veðri vaka, að öryggisráðið geti gripið til aðgerða verði ekki hætt að hindra störf hjálparstarfsmanna og böndum komið á skæruliðana. Nauðsynlegt er enda að grípa inn í atburðarásina þegar í stað. Talsmenn læknasamtakanna, Læknar án landamæara, segja eitt af hverjum fimm börnum í búðum sem þeir sinna vera hættulega vannært. Óttast er að allt að milljón gæti týnt lífi á næstu vikum og mánuðum þar sem skærur og þurrkur valda hungursneyð. Mannréttindafulltrúi á vegum Sameinuðu þjóðanna segir sterkar vísbendingar finnast um að framdir hafi verið glæpir gegn mannkyni, og ljóst er að sem stendur er neyðin hvergi í heiminum meiri, eða ástandið verra.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira