Frá degi til dags 28. júní 2004 00:01 Björn bróðir Á þingi Sambands ungra framsóknarmanna í gær var samþykkt sérstakt samkomulag milli tveggja fylkinga innan sambandsins sem kveður á um helmingaskipti á kjörtímabili stjórnarinnar. Núverandi formaður, Haukur Logi Karlsson, hefur gagnrýnt forystu flokksins mjög harkalega að undanförnu, einkum í tengslum við fjölmiðlamálið. Samkvæmt samkomulaginu mun Haukur Logi víkja úr formannsstóli þegar kjörtímabil stjórnarinnar er hálfnað og í hans stað kemur Jakob Hrafnsson. Sá síðarnefndi er bróðir Björns Inga Hrafnssonar, aðstoðarmanns Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra. Heimildir herma að hátt settir menn í flokknum hafi beitt sér mjög fyrir því að Haukur viki sem formaður en viljað um leið forðast átök innan ungliðahreyfingarinnar. Flestum þykir ljóst að ungliðahreyfing Framsóknarflokksins verður flokksforystunni ekki eins óþægur ljár í þúfu eftir að bróðir aðstoðarmanns flokksformannsins er kominn þar í forystu. Jakob hefur klifið hratt upp metorðastiga flokksins en þó ekki eins hratt og Björn bróðir, því sá síðarnefndi var orðinn hægri hönd formannsins örfáum mánuðum eftir að hann gekk í Framsóknarflokkinn. Þórólfur betri en Ingibjörg Þórólfur Árnason hefur nú gegnt starfi borgarstjóra í um það bil eitt og hálft ár. Eins og gengur eru skiptar skoðanir um störf hans og eðlilega eru þau iðulega borin saman við störf Ingibjargar Sólrúnar Gísldóttur sem var borgarstjóri frá 1994 til ársloka 2002. Á einu sviði er árangur Þórólfs óumdeilanlega betri en það er í laxveiðinni. Hefð er fyrir því að laxveiði í Elliðaánum hefjist á því að borgarstjóri veiði fyrsta laxinn. Ingibjörg Sólrún þótti með eindæmum mikil fiskifæla og gekk illa mestallan sinn feril. Gárungarnir höfðu þá á orði að laxarnir í ánni vissu greinilega hver hefði völdin í borginni því iðulega fékk framsóknarmaðurinn Alfreð Þorsteinsson fyrsta laxinn. Þórólfur er hins vegar mun fisknari en Ingibjörg og þegar Elliðaáin var opnuð á dögunum fékk hann fyrsta laxinn, 4ra punda hrygnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Sjá meira
Björn bróðir Á þingi Sambands ungra framsóknarmanna í gær var samþykkt sérstakt samkomulag milli tveggja fylkinga innan sambandsins sem kveður á um helmingaskipti á kjörtímabili stjórnarinnar. Núverandi formaður, Haukur Logi Karlsson, hefur gagnrýnt forystu flokksins mjög harkalega að undanförnu, einkum í tengslum við fjölmiðlamálið. Samkvæmt samkomulaginu mun Haukur Logi víkja úr formannsstóli þegar kjörtímabil stjórnarinnar er hálfnað og í hans stað kemur Jakob Hrafnsson. Sá síðarnefndi er bróðir Björns Inga Hrafnssonar, aðstoðarmanns Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra. Heimildir herma að hátt settir menn í flokknum hafi beitt sér mjög fyrir því að Haukur viki sem formaður en viljað um leið forðast átök innan ungliðahreyfingarinnar. Flestum þykir ljóst að ungliðahreyfing Framsóknarflokksins verður flokksforystunni ekki eins óþægur ljár í þúfu eftir að bróðir aðstoðarmanns flokksformannsins er kominn þar í forystu. Jakob hefur klifið hratt upp metorðastiga flokksins en þó ekki eins hratt og Björn bróðir, því sá síðarnefndi var orðinn hægri hönd formannsins örfáum mánuðum eftir að hann gekk í Framsóknarflokkinn. Þórólfur betri en Ingibjörg Þórólfur Árnason hefur nú gegnt starfi borgarstjóra í um það bil eitt og hálft ár. Eins og gengur eru skiptar skoðanir um störf hans og eðlilega eru þau iðulega borin saman við störf Ingibjargar Sólrúnar Gísldóttur sem var borgarstjóri frá 1994 til ársloka 2002. Á einu sviði er árangur Þórólfs óumdeilanlega betri en það er í laxveiðinni. Hefð er fyrir því að laxveiði í Elliðaánum hefjist á því að borgarstjóri veiði fyrsta laxinn. Ingibjörg Sólrún þótti með eindæmum mikil fiskifæla og gekk illa mestallan sinn feril. Gárungarnir höfðu þá á orði að laxarnir í ánni vissu greinilega hver hefði völdin í borginni því iðulega fékk framsóknarmaðurinn Alfreð Þorsteinsson fyrsta laxinn. Þórólfur er hins vegar mun fisknari en Ingibjörg og þegar Elliðaáin var opnuð á dögunum fékk hann fyrsta laxinn, 4ra punda hrygnu.
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun