Erlent

Aldrei í stríð af hentisemi

John Kerry tók við útnefningu demókrata í gær sem frambjóðandi þeirra í forsetakosningunum í nóvember næstkomandi. Kerry hélt af því tilefni ræðu sem talið er að skipti öllu fyrir pólitíska framtíð hans. Kerry gagnrýndi Bush forseta fyrir afglöp í Íraksmálinu, þó hann nefndi forsetann aldrei á nafn, og hét því að undir sinni stjórn færu Bandaríkin aðeins í stríð af brýnni þörf en ekki hentisemi. "Ég varði land mitt sem ungur maður og ver það sem forseti," sagði Kerry meðal annars. Hann sendi auk þess hryðjuverkamönnum tóninn og sagði framtíðina fela í sér frelsi en ekki ótta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×