Kerry heldur ræðu sína í dag 29. júlí 2004 00:01
John Kerry tekur í dag formlega við útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata á flokksþingi þeirra í Boston. Hann segir ræðuna sem hann heldur í tilefni dagsins vera þá mikilvægustu á ferli sínum. Í dag verður John Kerry að leggja grunninn að nokkru sem honum hefur ekki tekist á 30 ára ferli sínum í stjórnmálum. Nefninlega að færa almenning í Bandaríkjunum í sannleik um hver hann er og hver hans helstu baráttumál eru. Samkvæmt skoðanakönnunum fær John Kerry líklega flest atkvæði sín fyrir að vera ekki George Bush, fremur en út á eigið ágæti. Þó að fólk komist auðvitað ekki í allan sannleik um Kerry með því að hlýða á eina ræðu, er ræðan í dag talin fyrirboði um það sem koma skal. Tekst John Kerry að breyta ímynd sinni sem þurrum og leiðinlegum kerfiskarli á þeim þrem mánuðum sem eru fram að kosningum eða tekst það ekki? Samkvæmt fréttum ætlar John Kerry að skrifa sjálfur stærstan hluta hinnar 40 mínútna löngu ræðu sem hann flytur á flokksþinginu síðar í dag. Talið er að ræðan muni verða á persónulegum nótum og fjalla að nokkru leyti um lífshlaup Kerrys og þannig gefa alþýðlegri mynd af honum en þá sem fólk hefur nú. John Edwards tók formlega við útnefningu sem varaforsetaefni Demókrata á flokksþinginu í gær og hélt ræðu sem eins og við var búist vakti mikla lukku hjá viðstöddum. Málflutningur Edwards var á sömu leið og þeirra ræðumanna sem á undan honum töluðu í Boston. Hann og Kerry væru mennirnir sem myndu endurvekja vonir í brjóstum almennings og eyða þeirri gríðarlegu mismunun sem nú ætti sér stað í landinu. John Kerry væri stríðshetja sem hefði fórnað lífi sínu fyrir framan menn sína í Víetnam og hann væri rétti maðurinn til að hafa yfirumsjón með öryggi Bandaríkjamanna. Mikið hefur einmitt verið lagt upp úr því á þinginu í Boston að kynna Kerry sem stríðshetju, í þeirri von að fá fólk til að treysta honum í baráttunni gegn hryðjuverkum, þar sem hann stendur enn höllum fæti gagnvart George Bush samkvæmt skoðanakönnunum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira