Á þriðja tug þúsunda látnir 27. desember 2004 00:01
Á þriðja tug þúsunda fórst í náttúruhamförunum í Suðaustur-Asíu í gær og talið er víst að sú tala muni hækka. Björgunarmenn leita þeirra sem komust af og sækja lík upp í tré og á haf út. Aðstæðurnar eru ömurlegar og hætta á frekari hörmungum. Ekki færri en tuttugu og þrjú þúsund fórust í hamförunum og er jafnvel óttast að talan sé hærri - jafnvel svo skiptir tugum þúsunda. Ljóst er að hún mun hækka á næstu dögum eftir því sem björgunarmenn finna fleiri lík og hægt er að gera grein fyrir afdrifum fleira fólks. Þau lík sem finnast eru þó víða urðuð í skyndingu og því ljóst að líkast til verður aldrei hægt að gera grein fyrir öllum. Lík hafa fundist uppi í trjám og þeirra er leitað á hafi úti, þar sem aldan sópaði öllu með sér út á haf: strandgestum, smábörnum og sjómönnum. Bylgjan jafnaði hús við jörðu, þeytti fiskibátum upp á land og bílum inn um hótelglugga. Það voru ekki síst ung börn sem urðu illa úti enda eiga þau sér enga von þegar þau lenda í vatnselg af þessu tagi. Myndir sem borist hafa í dag sýna tugi ef ekki hundruð líka af litlum börnum og harmi slegna foreldra sem geta engan veginn tekist á við atburðina. Einna verst er ástandið á Srí Lanka þar sem aðrar eins hamfarir hafa aldrei riðið yfir. Yfir tíu þúsund eru sagðir hafa farist þar og talið víst að þeir séu fleiri. Tvö hundruð útlendingar eru á meðal þeirra sem urðu allt að fimmtán metra hárri flóðöldunni að bráð og yfirvöld geta á engan hátt tekist á við vandann. Á Indlandi var ástandið lítið skárra og þar hefur nokkurra eftirskjálfta orðið vart í dag sem komið hafa illa við þá sem eftir lifa. Þar hafa lík verið grafin í fjöldagröfum og þar sem flóðbylgjan var einna öflugust hafa smærri bylgjur valdið usla og gera enn. Þrír af hverjum fjórum sem fórust voru konur og börn. Á Taílandi voru flestir sem fórust erlendir ferðamenn. Hundruð eru sögð hafa týnt lífi þegar draumasumarleyfið breyttist í martröð á augabragði. Danir, Svíar, Svisslendingar, Ástralar, Ítalir, Nýsjálendingur og Bandaríkjamaður eru meðal þeirra sem vitað er að hafi farist þar. Annars staðar hefur verið greint frá því að Bretar, Belgar, Þjóðverjar, Ítalir, Japanar, Suður-Afríkumenn og Taívanar hafi týnt lífi.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Sjá meira