Menning

Talibanafemínistar gegn Bjössa Jör

Björn Jörundur hefur síður en svo setið á friðarstóli við það að stýra bOGb. Fyrir nokkru tóku ungir femínistar sig til og fóru um í bókabúðir landsins með límmiða sem þær settu á blað Björns og vöruðu við kvenfyrirlitningu og klámi sem í tímaritinu væri að finna. Og fengu sitt spott í fréttum fyrir vikið.

"Það er náttúrlega gefið mál í mínum huga að þær virðast hafa tekið þetta eitthvað skakt í sig. Ljóst er að þær eru að misskilja blaðið ef þetta er það sem þær eru að hafa áhyggjur af: Einhverskonar "klámvæðingu almannarýnisins" og þar af leiðandi niðurlægingu á kvenfólki. En þá er þetta kolrangur vettvangur. Þá eiga þær að fara í útlensku klámblöðin. Það er ekkert klám í þessu blaði. Því miður."

"Auðvitað er þetta kolólöglegt sem þær voru að gera. Væri eflaust hægt að kæra þær fyrir skemmdarverk og eitthvað fleira sem ég kann ekki nöfnin á í sambandi við að hindra og eyðleggja frjálsa verslunarhætti. Þetta eru hálfgerðir terroristar, talibanar, og haga sér eins og slíkir," segir Björn Jörundur.

Ítarlegt viðtal er við Björn Jörund í helgarblaði DV þar sem hann talar afar opinskátt eins og honum er lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×