Dráp vekur reiði meðal Araba 16. nóvember 2004 00:01
Myndbandsupptaka sem sýnir þegar bandarískur hermaður skýtur særðan og vopnlausan íraskan uppreisnarmann til bana hefur vakið mikla reiði í Arabaheiminum. Bandaríkjaher rannsakar atvikið. Tíu írakskir uppreisnarmenn féllu og fimm særðust þegar bandarískir hermenn réðust síðasta föstudag inn í mosku í Fallujah, sem uppreisnarhópar höfðu notað sem bækistöð fyrir árásir á Bandaríkjaher. Daginn eftir, á laugardag, fór annar hópur bandarískra hermanna inn í moskuna í fylgd myndatökumanns og fréttamanns frá bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC sem tóku myndir af því þegar bandarískur hermaður skaut særðan uppreisnarmann, sem ekki var ógnandi á nokkurn hátt. Þeir Írakar sem höfðu særst í bardaganum deginum áður lágu þá enn í moskunni, flestir illa særðir, dauðvona eða látnir. Ljóst er að Írakinn var á lífi þegar bandaríski hermaðurinn skaut hann og fréttamaður NBC vottar að hann hafi hvorki verið vopnaður né ógnandi á nokkurn hátt. Bandaríkjaher rannsakar nú atvikið sem virðist klárt brot á alþjóðalögum og hermanninum hefur verið vikið úr embætti á meðan. Félagar hermannsins segja að hann hafi þjáðst af stríðsstreitu enda sjálfur orðið fyrir skoti daginn áður. Víst er að atvik sem þessi eru afar algeng í stríði en það er hins vegar sjaldan sem þau nást á myndband.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira