Erlent

Táningur dæmdur í hryðjuverkamáli

Spænskur táningur hefur verið dæmdur til sex ára vistar í unglingafangelsi fyrir þátt hans í hryðjuverkaárásunum í Madríd 11. mars síðast liðinn. Táningurinn, sextán ára piltur, var fundinn sekur um að hafa flutt sprengiefni frá norðanverðum Spáni til hryðjuverkamannanna sem gerðu árásirnar. Saksóknari fór upphaflega fram á átta ára dóm en skömmu fyrir réttarhöldin lækkaði hann kröfuna í sex ár. Unglingurinn játaði sekt sína og því lauk réttarhöldunum á nokkrum mínútum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×