Airwaves meiriháttar viðburður 23. október 2004 00:01
Airwaves tónlistarhátíðin hefur fest sig í sessi sem meiriháttar tónlistarviðburður á alþjóðlegan mælikvarða. Það er sérstök ánægja með hátíðina í ár þar sem mun fleiri erlendir gestir hafa sótt hana. Þetta er í fyrsta sinn sem uppselt er á hátíðina. Kári Sturluson, umboðsmaður meðal annar Quarashi og Vínils, segir þetta vel heppnað. Aldrei hafi verið meiri áhugi. Hann segir að þeir sem spili á hátíðinni og standi sig vel geti tvímælalaust náð eyrum þeirra sem máli skipta í bransanum. Þar spilar líka inn í smæð Reykjavíkur sem gerir að verkum að „bransa- og fjölmiðafólkið“ kemst yfir að sjá flestar hljómsveitirnar. Meðal þeirra sem troða upp í kvöld á Gauknum er bandaríska hljómsveitin The Shins. James Mercer söngvari og Marty Crandall hljómborðsleikari eru spenntir, segja kynninguna góða og vonast eftir að geta kynnt hinn „mikla“ íbúafjölda landsins fyrir tónlist sinni. Að öðru leyti sé þetta ánægjulegt tækifæri fyrir þá að sjá nýtt land, stað sem þeir hefðu annars ekki farið til. Spurðir hvort þeir séu á barmi heimsfrægðar segja þeir svo vera, og að kvöldið í kvöld gæti haft áhrif á hvort af því verði.
Airwaves Tónlist Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira