Skoðun

Rétt ákvörðun Ólafs Ragnars

Sjónarmið - Guðmundur Magnússon



Ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, sem tilkynnt var í gær, að staðfesta afnám fjölmiðlalaganna var réttmæt og skynsamleg. Með henni leggur forsetinn lóð sitt á vogarskál sáttar í samfélaginu eftir hörð átök undanfarinna mánuða. Nú skapast svigrúm og tími til að hefja málefnalega vinnu við að skoða leikreglur og lagaumhverfi á fjölmiðlamarkaði og ræða af yfirvegun og þekkingu um stjórnarskrána og stjórnskipanina. Hvort tveggja eru þýðingarmikil verkefni, þótt með afar ólíkum hætti sé.

Því er ekki að neita að lögfræðilegur efi ríkir um réttmæti þess að fella úr gildi lög sem forseti Íslands hefur synjað staðfestingar og þannig kallað fram þjóðaratkvæðagreiðslu. En hér hlaut skynsemi að ráða niðurstöðunni, jafnt hjá Alþingi sem forseta, frekar en einstrengisleg bókstafstúlkun. Vont er hins vegar að að slík staða komi upp. Hún sýnir ásamt öðru nauðsyn þess að stjórnarskráin fái vandaða endurskoðun fyrir lok kjörtímabils núverandi ríkisstjórnar. Kveða þarf upp úr -- og ná víðtækri sátt -- um hvert eigi að vera hlutverk og vald forseta Íslands. Marka þarf stefnu um rétt alþingismanna og kjósenda til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um stór ágreiningsefni. Ætti í því efni að horfa til fyrirmynda í stjórnarskrám nágrannaríkjanna.

Ekkert sem gerst hefur á fjölmiðlamarkaði að undanförnu knýr beinlínis á um lagasetningu. Enginn vá er eða hefur verið fyrir dyrum. Þótt breitt eignarhald á fjölmiðlum sé æskilegt verður ekki með nokkurri sanngirni horft fram hjá því af fjölbreytni í fjölmiðlum hefur stóraukist hér á landi á undanförnum mánuðum. Stærstan þátt í því eiga þeir aðilar sem standa að fjölmiðlafyrirtækinu Norðurljósum, sem meðal annars er eigandi Fréttablaðsins. Án atbeina þeirra er ekki ósennilegt að hér væri aðeins eitt dagblað og ein sjónvarps- og útvarpsstöð sem burði hefði til að reka fréttastofu og innlenda dagskrárgerð.

Stærsta brotlömin á fjölmiðlamarkaðinum er rekstur Ríkisútvarpsins sem með lögbundnum sérréttindum sínum skekkir og skaðar samkeppnisstöðu einkarekinna ljósvakamiðla. Um framtíð þess rekstrar þarf að nást víðtækt samkomulag. Almenn lagasetning um fjölmiðla kann einnig að vera skynsamleg í því skyni að skapa frið og sátt í þjóðfélaginu um þessa mikilvægu starfsemi. En slík lagasetning verður að taka mið af veruleika hins íslenska markaðar, fámennis þjóðarinnar og takmarkaðrar arðsvonar af fjölmiðlarekstri. Hún má ekki hindra nýsköpun í greininni, tæknilegar framfarir og rétt manna til að njóta stjórnarskrárvarins tjáningarfrelsis.

Mikilvægt er að málsmeðferðin á næstu mánuðum og misserum verði í anda þeirrar lýðræðishefðar, sem stundum er kölluð umræðustjórnmál, en ekki foringjatilskipana, sem þjóðin er búin að fá sig fullsadda af.




Skoðun

Sjá meira


×