Fangar á Kúbu geta höfðað mál 28. júní 2004 00:01
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur úrskurðað að bandarísk stjórnvöld hafi rétt á að halda bandarískum og erlendum ríkisborgurum sem grunaðir eru um að vera tengdir hryðjuverkum í haldi. Rétturinn úrskurðaði hinsvegar jafnframt að menn sem eru í haldi stjórnvalda vegna þessa geti leitað réttar síns fyrir bandarískum dómstólum, jafnvel þó að þeir séu ekki í fangelsi í Bandaríkjunum. Úrskurðurinn þykir vera mikill ósigur fyrir bandarísku ríkisstjórnina sem hafði farið fram á að geta haldið mönnum sem grunaðir eru um að tengjast hryðjuverkum í haldi eins lengi og forsetinn teldi nauðsynlegt. Í kjölfar úrskurðarins er búist við holskeflu mála fanga sem hafa setið í fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu síðan hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á World Trade Center í New York. Undirréttur í Bandaríkjunum hafði áður úrskurðað að bandarískir dómstólar hefðu ekki lögsögu yfir þessum föngum. Hæstiréttur hefur nú úrskurðað á annan veg en í úrskurðinum tekur hann hins vegar hvorki afstöðu til hugsanlegrar sektar eða sakleysis fanga né mannréttindarmála sem tengjast meðferð á föngum í fangabúðunum. Um 600 fangar af um það bil 40 þjóðernum eru í fangelsinu á Kúbu án þess að þeim hafi verið birt ákæra. Fangarnir voru flestir handteknir í Afganistan og Pakistan þegar Bandaríkjamenn steyptu stjórn talíbana frá völdum. Bandarísk stjórnvöld telja fangana hættulega þar sem þeir tengist annaðhvort talíbana-stjórninni fyrrverandi eða al-kaída-samtökunum. Búist er við að meginþorri fanganna muni krefjast þess að mál þeirra verði tekin fyrir þar sem þeir efist um lögmæti þess að þeim skuli vera haldið í fangabúðunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira