Feimumst vonandi í allt sumar 23. júní 2004 00:01
Fame Sumarsöngleikurinn verður frumsýndur í kvöld í Vetrargarðinum í Smáralind en nú þegar hafa sex þúsund manns pantað miða á söngleikinn. @ljosmyndari: Björg Vigfúsdóttir tilv: FRUMSÝNING ÁLFRÚN HELGA ÖRNÓLFSDÓTTIR "Við byrjuðum snemma á dansæfingum og erum komin í mjög gott form," segir leikkonan Álfrún Helga Örnólfsdóttir en söngleikurinn Fame verður frumsýndur í Smáralind í kvöld og þar ætlar hún að gera garðinn frægan ásamt öðru hæfileikafólki. Fame segir frá sorgum og sigrum í skólagöngu ungra listanema. "Þetta byrjar á fyrsta skóladegi og endar á útskriftardaginn þremur árum seinna. Ég leik Sigríði leiklistarnema sem tekur námið ekkert sérstaklega alvarlega til að byrja með," segir Álfrún. "Hún verður skotin í bekkjarfélaga sínum Hilmari Snæ, sem er leikin af Jónsa, en hann er svo djúpt sokkin í leiklistarpælingarnar að hann hefur engan áhuga á stelpum og fer bara í vörn þegar Sigríður sýnir honum einhverjar tilfinningar. Það er stiklað á stóru á þessum þremur árum en Sigríður breytist mjög mikið á þessu tímabili og finnur sig bæði sem manneskju og leikkonu." Álfrún útskrifaðist sjálf úr listaskóla fyrir ári síðan og segir sumt í leikritinu svipa til eigin skólagöngu. "Því miður var ekki mikið um að fólk brysti óvænt út í söng og balletdans á göngum skólans sem ég var í úti í London en vissulega minnir margt í leikritinu á skólagönguna. Þarna er til dæmis að finna einstaklinga sem hafa mjög mikla athyglisþörf og svo heyrir maður frasa frá kennurunum sem maður kannast við eins og til dæmis það að maður eigi aldrei að biðjast afsökunar á sér í leikhúsinu jafnvel þó maður geri mistök." Sex þúsund miðar hafa nú þegar verið seldir á söngleikinn Fame og er því greinilegt að mikil eftirvænting ríkir fyrir söngleiknum. "Það er mjög góð stemning fyrir þessu og í leikhópnum er mikil spenna, gleði og kraftur. Fame er blanda af skemmtilegum lögum, kraftmiklum dansi og mátulega mikilli skírskotun í íslenskan raunveruleika. Það voru áhorfendur á rennslum bæði í gær og fyrradag og það gefur mann auka kraft hvað allir virðast hrifnir," segir Álfrún og bætir við. "Við erum til í slaginn og eigum vonandi eftir að feimast í allt sumar."
Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Menning Fleiri fréttir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Sjá meira