Sexföldun í smiti á lömunarveiki 23. júní 2004 00:01
Mesti lömunarveikisfaraldur síðari ára geisar nú í Nígeríu og hætta er á að faraldurinn dreifist til Mið- og Vestur-Afríku. Samkvæmt upplýsingum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar hafa nú þegar sex sinnum fleiri börn smitast af sjúkdómnum í ár en á síðasta ári. Faraldurinn á upptök sín í Kano í Nígeríu þar sem 257 börn hafa þegar smitast af lömunarveiki. Efasemdir um öryggi bólusetninga urðu til þess að þeim var hætt um tíma með fyrrgreindum afleiðingum. Börn undir fimm ára aldri eru helstu fórnarlömb lömunarveiki sem stafar af vírus er ræðst á taugakerfið og getur valdið algerri lömun og í kjölfarið dauða. Frá árinu 1988 hefur yfir þrem milljörðum bandaríkjadala verið eytt í baráttuna gegn lömunarveiki. Veikin hefur nú komið upp í tíu löndum sem talið var að væru laus við lömunarveiki, þar á meðal Súdan, Chad, Burkina Faso og Fílabeinsströndinni. Forsvarsmenn UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, segja hættu á að heilbrigðisharmleikur, sem koma megi í veg fyrir, eigi sér stað ef ekki verður brugðist fljótt við. Allt kapp þurfi að leggja á að bólusetja 74 milljónir barna í 22 löndum en til þess þurfi fjármagn. Talið er að bæta þurfi 100 milljónum bandaríkjadala við það fjármagn sem nota átti til bólusetninga í Afríku á þessu ári.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Sjá meira