Lífið

Litagleði Í húsinu

Þegar sumarið brestur á koma í verslanir sumarlegar vörur í öllum regnbogans litum. Það nýjasta af nálinni í versluninni Í húsinu, sem nýlega stækkaði húsnæði sitt í Kringlunni, eru danskar vörur, mikið úr plasti og flestar frá vörumerkinu Rice. Litagleðin er allsráðandi, bleikt, grænt og blátt og blóma- og doppumunstur eru áberandi. Diskarnir og glösin frá Rice hafa fengið frábærar viðtökur enda er í þessum vörum hágæðaplast sem þolir vélarþvott og mikinn hita. Þessar vörur passa afar vel undir steikina og rauðvínið út í garði á sólríku sumarkvöldunum sem framundan eru, og ekki er verra að hafa blómum skreyttan dúk undir til að gleðja augað enn frekar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×