Kerfisáróður í Evrópumálum 13. júní 2004 00:01 Ísland og Evrópusambandið - Ingvar Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra Baldur Þórhallsson, kennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, kom fram í Kastljósi Sjónvarpsins 25. maí sl. Orðræðan snerist að verulegu leyti um afstöðu Íslendinga til Evrópubandalagsins og ástæður þess að ekki hefur enn komið til þess að Ísland sækti þar um fulla aðild. Málflutningur Baldurs var slíkur að orða- og hugtakanotkun sýndi býsna vel persónulega skoðun hans á Evrópumálum. Hann er augljóslega sambandsríkjasinni, evrópskur federalisti. Honum er það að sjálfsögðu frjálst. Hins vegar tekst honum ekki vel upp þegar hann tekur sér fyrir hendur að skýra afstöðu andstæðinga sinna í Evrópumálum, þess fólks sem kalla mætti fullveldissinna. Málflutningur hans er vísbending þess, sem við blasir, að rekinn er leynt og ljóst "kerfisáróður" fyrir þeirri skoðun að Íslendingum sé til hagsbóta að afsala sér (enn frekar en orðið er) fullveldi þjóðríkis síns. Baldur benti einkum á tvennt, sem veldur tregðu Íslendinga að ganga í Evrópubandalagið. Fyrri ástæðan á að vera sú að ýmsir "tengjast" sjávarútvegi (helst) eða landbúnaði og óttast um hag þessara atvinnugreina í miðstýrðu stjórnskipulagi fjölþjóðaríkis. M.ö.o. slíkir andstæðingar aðildar móta þá afstöðu sína af hagsmunaástæðum tiltekinna atvinnugreina. Þessi afstaða er þó hvorki óeðlileg né óskiljanleg. Pólitísk afstaða er iðulega hagsmunatengd með einum eða öðrum hætti. Því verður ekki breytt fyrr en með guðsríki á jörð. Hin ástæðan á að vera sú, að andstæðingar aðildar séu "þjóðernissinnar", en það er stjórnmálahugtak, sem í íslensku hefur fyrst og fremst verið haft um þá sem aðhylltust öfgafullar og ólýðræðislegar yfirgangsstefnur á 20. öld, nasisma og fasisma, og fela í sér trú á ágæti einstakra kynstofna umfram aðra og sagðir gæddir ofurmannlegum eigindum. Íslenskir stjórnmálaflokkar hafa varast að nota orð eins og "þjóðernissinni" og "þjóðernishyggja" sér til einkennis, þó að því undanskildu að stuttan tíma á 4. áratug nýliðinnar aldar var til "Þjóðernishreyfing Íslendinga", fámennur og áhrifalítill flokkur, sem sótti fyrirmyndir til þýskra nasista. Þessi orð eru neikvæð og útdauð í íslenskri stjórnmálaumræðu, en haldið lifandi í máli fræðimanna, einkum sagnfræðinga og stjórnmálafræðinga. Sagnfræðingar ofnota mjög þessi orð, þótt önnur ættu betur við. Nú vill svo til að ég er í hópi þeirra Íslendinga, sem eru andvígir aðild Íslands að Evrópubandalaginu. Ég er fullveldissinni en ekki federalisti. Mér þætti ansi hart ef mér væri núið því um nasir að vera þjóðernissinni eða þjóðernissinnaður. Þeir fullveldissinnar, sem ég þekki, frábiðja sér að láta bendla sig við þjóðernishyggju. Íslenskt þjóðerni er hvorki betra né verra en þjóðerni annarra manna. Íslendingar eru ekki ofurmenni og heimsfrægð þeirra mjög ofmetin. Íslendingar eru þjóðarkríli og eiga að passa sitt dont af gætni. Þess vegna eru fullveldissinnar á borð við mig og mína líka andvígir því að semja sig undir yfirþjóðlegt stjórnskipulag sambandsríkis. Stefna okkar er varfærnisstefna. Við erum fullveldissinnar af því að við teljum hag Íslendinga betur borgið með því að halda í þjóðríkið, viðhalda stjórnarfarslegu fullveldi, málið er nú ekki flóknara en það. Viðhorf okkar eru "þjóðleg". Þannig tryggjum við best að íslenskt þjóðfélag sé "samfélag um íslenska menningu, gamlan arf og nýja sköpun, ætlunarverk íslensku þjóðarinnar" eins og forseti Íslands, Kristján Eldjárn, orðaði það í nýjársávarpi 1980. Ég notaði í upphafi þessa greinarkorns orðið "kerfisáróður". Allt eins mætti nefna fyrirbærið stofnanaáróður. "Kerfið" er auknefni valda- og áhrifastofnana þjóðfélagsins. Flestir hafa tilfinningu fyrir því hvað við er átt. "Kerfið" er, eins og nafnið bendir til, allflókinn vefur en ekki samofinn að öllu leyti. Þrátt fyrir það reynist "Kerfið" í mörgum tilfellum svo gagnheilt að það verkar allt í sömu áttina, stundum til góðs, stundum til hins verra. Samverkun "Kerfisins" er áberandi í Evrópumálum. Hagsmunasamtök ýmiss konar líta vonaraugum til Evrópusambandsins. Heilu ráðuneytin ganga svo langt í aðildaráróðri sem kjarkurinn leyfir. Háskólasamfélagið er öflugasti drifkraftur í aðildaráróðri, svo að stappar nærri óskammfeilni. Fjölmiðlar eru undirlagðir af þessu leynt og ljóst, að ekki sé minnst á ýmsa kunna stjórnmálaforingja og foringjaholla flokksgæðinga sem lúmskast með. Það allra nýjasta er að svokölluð Fastanefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og Noregi hefur gefið út sérstakt kennsluefni um ESB handa íslenskum ungmennum. Ritið nefnist Upplifðu Evrópu@. Mun unnið að því að fá kennslu í þessum fræðum tekna upp í skólakerfinu. Ósvífni kerfisáróðursins á sér engin takmörk. En hvað er þá að segja um áhrif þessa mikla áróðurs? Jú, þau hljóta að vera töluverð, en þó ekki meiri en við er að búast af slíkri áróðursbreiðsíðu. Því má segja það mörgum landanum til hróss, að hann lætur ekki kerfisáróðurinn snúa sér. Í því felst vonin um að fullveldi Íslands verði ekki fórnað meira en orðið er. Nóg er nú samt. Svo mikið er a.m.k. víst að ríkisstjórnin hefur enn ekki vogað að sækja um fulla aðild að ESB. - En kerfisáróðurinn heldur sitt strik. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþóf á kostnað ungs fólks Lísa Margrét Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Við krefjumst sanngirni og aðgerð strax Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Úrsúla og öryggismálin - Stöndum gegn vígvæðingu Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Verðmætatap auðlindagjaldanna – Hverra og hvernig? Haukur V. Alfreðsson skrifar Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Sanngirni að brenna 230 milljarða króna? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Strandveiðar eru ekki sóun Örn Pálsson skrifar Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun SFS skuldar Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Hvar er hjálpin sem okkur var lofað? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Áform um fleiri strandveiðidaga: Áhættusöm ákvörðun Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael! Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Aukið við sóun með einhverjum ráðum Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Kæru valkyrjur, hatrið sigraði líklega í þetta skiptið Arnar Laxdal skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð - alltaf! Jóna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin stóð af sér áhlaup sérhagsmuna Ásthildur Lóa Þórsdóttir skrifar Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar Skoðun Tvöföld bið eftir geislameðferð er of löng Katrín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fröken þjóðarmorð: Þér er ekki boðið! Linda Ósk Árnadóttir,Yousef Ingi Tamimi skrifar Skoðun Linsa Lífsins Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun „Að skrifa söguna“ Var of mikið undir hjá kvennalandsliðinu? Viðar Halldórsson skrifar Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Netöryggi til framtíðar Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Aftur á byrjunarreit Hörður Arnarson skrifar Sjá meira
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun „Ísland mun taka þátt í þvingunaraðgerðum gegn Ísrael náist samstaða fleiri ríkja“ Einar Ólafsson skrifar
Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson skrifar
Skoðun Flugnám - Fjórði hluti: Hlutverk Reykjavíkurflugvallar í flugnámi Matthías Arngrímsson skrifar
Skoðun Stjórnmál sem virka og lýðræði sem kemst ekki fyrir í umslagi Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Þversögn Íslands í Palestínumálinu: Um fullveldi, samsekt og réttarríkið Gína Júlía Waltersdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind í skólum: Tækifæri til byltingar eða hætta á nýjum ójöfnuði? Sigvaldi Einarsson skrifar
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun