Ók í tvígang á lögreglubíl 7. desember 2004 00:01
Kona á fertugsaldri ók tvívegis á lögreglubíl á fullri ferð og stakk síðan af síðastliðið mánudagskvöld. Lögreglumennirnir kenndu eymsla í hálsi og var lögreglubíllinn óökufær, hann var nokkuð klesstur auk þess sem fram- og hliðarlíknarbelgir í bílnum blésu út. Maður, sem er forstöðumaður trúfélags, bað lögregluna um aðstoð vegna konunnar sem veitti honum eftirför rétt fyrir klukkan tíu um kvöldið. Konan reyndi nokkrum sinnum að keyra í veg fyrir manninn en hún ásakar hann um að hafa lagt á sig álög. Við bílastæðið hjá heimilum eldri borgara, við Árskóga í Breiðholti, kom lögreglan þangað sem konan hafði veitt manninum eftirför. Þar ók konan á lögreglubílinn í tvígang og stakk síðan af en lögreglumennirnir sátu eftir í óökufærum bílnum. Strax hófst leit að konunni með aðstoð lögreglunnar í Reykjavík. Konan skildi bílinn eftir í Breiðholti og fannst hún rétt fyrir miðnætti þar sem hún vitjaði bílsins en lögreglan sat fyrir henni á ómerktum bíl. Þótti með ólíkindum að bíll konunnar hefði verið ökufær eftir aðfarir hennar. Ekki er vitað hvað konunni gekk til en hún er ekki grunuð um að hafa verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira