Erlent

Myrtu héraðsstjóra Mósúl

Írakskir skæruliðar myrtu í dag héraðsstjóra Mósúl, þar sem hann var á leið sinni til Bagdad. Á sama tíma sprakk öflug bílsprengja í Bagdad, með þeim afleiðingum að ellefu létust og tugir særðust. Talið er að þetta hafi verið sjálfsmorðsárás og er hún sú mannskæðasta síðan Írakar tóku við stjórnartaumunum í landinu í lok júní. Hershöfðingjar tengja árásina við handtöku meira en 500 grunaðra hryðjuverkamanna fyrr í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×