Erlent

Blair réðst inn í góðri trú

Gögn bresku leyniþjónustunnar sem bentu til þess að Írakar byggju yfir efnavopnum fyrir innrásina í landið voru mjög gölluð og byggðu á óáreiðanlegum heimildum. Tony Blair forsætisráðherra er hins vegar ekki sekur um að hafa viljandi brenglað fyrirliggjandi gögn eða um vítaverða vanrækslu. Þetta er niðurstaða skýrslu Robins Butler lávarðs, en hann stýrði opinberri rannsókn um aðkomu bresku ríkisstjórnarinnar að innrásinni í Írak. Rannsókn málsins stóð í hálft ár og var Tony Blair meðal þeirra sem voru yfirheyrðir vegna málsins, ásamt ýmsum ráðherrum og yfirmönnum leyniþjónustunnar. Blair fagnaði niðurstöðu skýrslunnar en tekur persónulega ábyrgð á mistökum sem gerð voru. Hann sagði á þingi að síðastliðna mánuði hafi það legið æ skýrar fyrir að Írakar bjuggu ekki yfir neinum efnavopnum þegar ákveðið var að ráðast inn í Írak. Hann lítur þó ekki á það sem mistök að steypa Saddam Hussein af stóli og telur heiminn öruggari fyrir vikið. Andstæðingar Blair á þingi segja að niðurstöður skýrslunnar rýra trúverðugleika Blair og að orðspor hans hafi beðið hnekki. Skýrsla Butler lávarðs er samhljóma skýrslu bandarískrar rannsóknarnefndar sem birtist í síðustu viku þar sem sagði að Írakar hefðu ekki búið yfir neinum efnavopnum. Breska leyniþjónustan fær harða útreið í skýrslunni fyrir að byggja upplýsingar sínar á gölluðum gögnum og óáreiðanlegum heimildum, auk þess sem hún hafi gert meira úr hættunni frá Írak en efni stóðu til.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×