Blair réðst inn í góðri trú 14. júlí 2004 00:01
Gögn bresku leyniþjónustunnar sem bentu til þess að Írakar byggju yfir efnavopnum fyrir innrásina í landið voru mjög gölluð og byggðu á óáreiðanlegum heimildum. Tony Blair forsætisráðherra er hins vegar ekki sekur um að hafa viljandi brenglað fyrirliggjandi gögn eða um vítaverða vanrækslu. Þetta er niðurstaða skýrslu Robins Butler lávarðs, en hann stýrði opinberri rannsókn um aðkomu bresku ríkisstjórnarinnar að innrásinni í Írak. Rannsókn málsins stóð í hálft ár og var Tony Blair meðal þeirra sem voru yfirheyrðir vegna málsins, ásamt ýmsum ráðherrum og yfirmönnum leyniþjónustunnar. Blair fagnaði niðurstöðu skýrslunnar en tekur persónulega ábyrgð á mistökum sem gerð voru. Hann sagði á þingi að síðastliðna mánuði hafi það legið æ skýrar fyrir að Írakar bjuggu ekki yfir neinum efnavopnum þegar ákveðið var að ráðast inn í Írak. Hann lítur þó ekki á það sem mistök að steypa Saddam Hussein af stóli og telur heiminn öruggari fyrir vikið. Andstæðingar Blair á þingi segja að niðurstöður skýrslunnar rýra trúverðugleika Blair og að orðspor hans hafi beðið hnekki. Skýrsla Butler lávarðs er samhljóma skýrslu bandarískrar rannsóknarnefndar sem birtist í síðustu viku þar sem sagði að Írakar hefðu ekki búið yfir neinum efnavopnum. Breska leyniþjónustan fær harða útreið í skýrslunni fyrir að byggja upplýsingar sínar á gölluðum gögnum og óáreiðanlegum heimildum, auk þess sem hún hafi gert meira úr hættunni frá Írak en efni stóðu til.
Erlent Fréttir Mest lesið Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira