Nauðgað til að tryggja giftingu 24. september 2004 00:01
Chaltu Jeylu var rænt þegar hún var þrettán ára, henni haldið í gíslingu og nauðgað trekk í trekk þar til hún varð ófrísk. Nauðgarinn var 24 ára karlmaður sem naut aðstoðar fjórtán vina sinna við að ræna henni. Tilgangur hans var að fá hana fyrir eiginkonu og sleppa ódýrt frá heimanmundinum sem venja er að eþíópískir brúðgumar borgi foreldrum brúðarinnar. Saga Chaltu er aðeins ein af mörgum í landi þar sem mannrán og nauðganir eru algeng aðferð karlmanna við að ná sér í brúðir. Þetta er ódýr leið til að ná sér í brúði. Í stað þess að borga foreldrum stúlkunnar andvirði allt að 30.000 króna fyrir að fá að kvænast henni geta menn sloppið með nokkur þúsund króna greiðslu ef þeir ræna stúlkunum fyrst og nauðga þeim. Þar ræður að skömm stúlknanna er svo mikil í samfélaginu að aðrir eru ólíklegir til að vilja kvænast þeim. "Ég elskaði hann ekki. Fyrir mig er mikilvægast að elska þann sem ég er með," sagði Chaltu sem flýði frá manninum sem rændi henni, nauðgaði og kvæntist síðan. Flótti hennar naut ekki skilnings fjölskyldunnar, faðir hennar afneitaði henni, sem og aðrir ættingjar og nágrannar. Einungis móðir hennar tók afstöðu með henni en mátti sín lítils. Nú nýtur Chaltu aðstoðar heilbrigðis- og menntakerfisins líkt og margar stúlkur sem hafa mátt reyna það sama og hún og hafa flúið þá menn sem þær hafa verið knúnar til að giftast. Þar verða þær þó einnig varar við fordóma í sinn garð frá þeim sem eiga að hjálpa þeim. "Gæti ég kvænst stúlku sem hefur verið bjargað eftir brottnám? Nei, það væri of mikil skömm fyrir mig," sagði Tsegaye Ayane, næstæðsti embættismaður skólaráðsins þar sem Chaltu býr. Meðan stúlkurnar búa við ótta og dekkri framtíð en ella, sumar illa leiknar eftir ofbeldið sem þær hafa verið beittar - eins og hin tólf ára Samara Umare sem er lömuð á vinstri hendi - er ekkert aðhafst til að refsa mönnunum. "Ég vil að honum verði refsað en ég veit ekki hvað gerist," sagði hin þrettán ára Alfu Haji Aman sem var nauðgað og kærði ræningja sinn, þvert á ráð foreldra hennar. Hún er ekki bjartsýn á að nauðgara sínum verði refsað. "Siðirnir, hefðin og lögin eru hagstæð körlunum," sagði hún.
Erlent Fréttir Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira