Réðist með öxi á flugmenn 29. september 2004 00:01
Litlu mátti muna að norsk farþegaflugvél færist þegar farþegi réðist á tvo flugmenn og einn farþega með exi. Flugmennirnir misstu stjórn á vélinni við árásina enda fleygði maðurinn sér yfir stjórntæki flugvélarinnar. Við það tók vélin dýfu og var aðeins þrjátíu metrum yfir haffletinum þegar flugmennirnir náðu loks að rétta hana af. Flugmennirnir og farþeginn sem varð líka fyrir árásinni meiddust nokkuð en samt tókst flugmönnum að lenda vélinni heilu og höldnu. Flugvélin var á leið frá Narvík til Bodö í Norður-Noregi. Um borð voru tveir flugmenn og sjö farþegar. Maðurinn gekk um borð í vélina með öxi og hníf í tösku og annan hníf í jakkavasa sínum. "Þetta er hræðilegt atvik," sagði Nils Erik Rognli, flugvallarstjóri í Narvík, í viðtali við norskra ríkisútvarpið og benti á að ekkert öryggiseftirlit væri á flugvellinum sem er á undanþágu frá öryggisreglum til áramóta. Axarmaðurinn er alsírskur hælisleitandi sem var nýlega synjað um hæli í Noregi. "Okkur virðist sem hann sé ekki í andlegu jafnvægi en við vitum meira um það þegar læknir hefur rannsakað hann," sagði Tone Vangen, starfandi lögreglustjóri í Bodö í viðtali við Aftenposten. Hún sagði axarmanninn hafa neitað að ræða við lögreglu.
Erlent Fréttir Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira