ESB ekki á dagskrá í Noregi 21. nóvember 2004 00:01
Þrátt fyrir að meirihluti Norðmanna sé fylgjandi aðild að Evrópusambandinu og tveir stærstu stjórnmálaflokkar Noregs einnig, þá eru Evrópumálin ekki á dagskrá í norskri stjórnmálaumræðu. Norðmenn höfnuðu aðild að Evrópusambandinu fyrir tíu árum. Síðan hefur jafnan verið mjótt á mununum og á þessu ári hafa þeir sem vilja inn í ESB haft forskot á hina. Könnun sem birtist í síðustu viku sýndi að 56% Norðmanna er fylgjandi inngöngu í ESB en 44% eru því mótfallin. Kosið verður í Noregi næsta haust og segja má að þegar hafi myndast tvær fylkingar sem berjast um stjórnartaumana. Annars vegar núverandi stjórnarflokkar: Kristilegi þjóðarflokkurinn og Hægri og svo hins vegar stjórnarandstaðan: Verkamannaflokkurinn og Sósíaldemókratar. Það er athyglisvert að hvort sem þeir eru fylgjandi inngöngu í ESB eða ekki þá eru allir þeir norsku þingmenn sem Stöð 2 ræddi við sammála um það að Evrópumálin verða ekki á dagskránni í norskri pólitík á næstunni. Ástæðan er sú að þrátt fyrir að tveir stærstu stjórnmálaflokkar Noregs, Verkamannaflokkurinn og Hægri flokkurinn, séu fylgjandi ESB aðild, þá er líkt komið á með Íslendingum og Norðmönnum að því leyti að afstaðan til Evrópumálanna gengur þvert á önnur mál og hefðbundna hægri/vinstri skiptingu. Þessir tveir flokkar eiga því ekki samleið í neinu öðru stóru máli. Þeir liggja hvor í sinni fylkingunni og útilokað að þeir taki höndum saman, myndi ríkisstjórn og sigli Noregi í evrópska höfn. Olav Akselsen, Norska Verkamannaflokknum, telur að þetta verði ekki ofarlega á baugi ef ekkert gerist. Hann fagnar því að stuðningur sé hjá þjóðinni við inngöngu í ESB en er hræddur um að ef undirbúningur verði ekki nægur verði sagt nei einu sinni enn. Oft er talað um að Evrópuumræðan í Noregi móti Evrópuumræðuna á Íslandi en pólitískar aðstæður þessara nágrannaþjóða eru nú þannig, að hugsanlegt er að þetta sé að snúast við. Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, segir það vera inni í myndinni. Ef alvöru umræða hefjist á Íslandi um inngöngu í ESB hafi það áhrif í Noregi. „En okkur liggur ekkert á því áður en umræðan hefst hér í Noregi verðum við að vita hvað kemur út úr því svo við sækjum ekki um í þriðja sinn og fáum enn einu sinni höfnun,“ segir Bondevik sem býst við að umræðan fari fram á seinni hluta næsta kjörtímabils, þ.e. á árunum 2007-2009.
Erlent Fréttir Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira