Knúinn áfram af fegurð 23. júní 2004 00:01
Á öllum mínum fimm árum sem blaðamaður hefur mér aldrei liðið jafn illa að tala við nokkurn mann í síma og Lou Reed. Ég held að mér hafi, á þessum fáránlega stutta tíma í starfinu, tekist að taka viðtöl við öll goðin mín þannig að ég var ekkert sérstaklega spenntur né kvíðinn fyrir þessu spjalli. Lou er eini viðmælandi minn sem hefur sent mér punkta fyrirfram um hvað "megi" tala um. Hann hefur líka sérstakt orð á sér fyrir að vera erfiður í viðtölum. Ég þekki ágætlega til kappans og tók ekki of mikið mark á þessu. Var staðráðinn í því að reyna að eiga eðlilegt spjall við manninn, eins og mér hefur tekist við alla aðra viðmælendur mína. Þá skiptir engu hvort þeir eru heimsfrægir eða ekki, mér er einfaldlega alveg skítsama. Lou var þó ekki alveg á höttunum eftir að þvaðra við óúpplýstan blaðamann. Tónn hans er svo óþægilega kennaralegur að kaldur sviti rann af enni mínu á meðan á spjallinu stóð. Til hamingju Lou... þér tókst hið ómögurlega. Undir yfirheyrslu "Hmm," heyrist með afslappaðri og þreytulegri röddu Lou Reed í gegnum símann frá New York eftir að ég kynni mig. "Sæll Biggi." Ég tók þá ákvörðun að móðga ekki manninn og byrja á atriði sem var á listanum hans. Segðu mér frá The Raven. "Ertu með tvöfalda diskinn eða smáskífuna?" Ég hef hvorugan diskinn fengið. "Þannig að þú hefur ekki heyrt þetta?" Nei, það hef ég ekki gert. "Þannig að þú ætlar að spyrja mig spurninga um eitthvað sem þú hefur ekki heyrt?," spyr hann og hljómar hneykslaður. Já, það er nú bara út af því að þetta var eitt atriðanna sem þú vildir tala um samkvæmt listanum. Tengist The Raven eitthvað samnefndu ljóði eftir Edgar Allan Poe? "The Raven er tvöfaldur diskur sem ég gerði. Þar færi ég Edgar Alan Poe yfir í tónlist. Ég vona að ég hafi náð að gera hann aðgengilegan fyrir samtímamenn. Á plötunni koma frábærir leikarar við sögu, eins og Willem Dafoe, Steve Buscemi, Elizabeth Ashley og fleiri." Frá þessari erfiðu byrjun barst talið að Chen Tai Chi meistaranum Ren Guangyi sem hefur komið fram með Lou á tónleikum. Lou segist hafa sökkt sér í kínverska menningu og stundað þá sjálfsvarnarlist í 20 ár. Hann segist gera æfingar í minnst 20 mínútur á dag. Eftir að hann lagði eiturlyfin á hilluna sökkti hann sér djúpt í andleg málefni og hefur m.a. unnið að gerð slökunartónlistar með kínverska nálastungusérfræðingnum Dr. Pung. "Ég gerði tónlist til þess að hugleiða eða gera Tai Chi æfingar við. Dr. Pung las inn á band fyrir mig leiðbeiningar um hugleiðslu. Mig langar til þess að setja textann hennar ofan á tónlistina. Ég er næstum því búinn með þetta. Mig langar til að selja þetta á netinu fyrir þá sem vantar tónlist til þess að hugleiða við. Þetta er alls ekki meginstraumstónlist, eins og þú getur ímyndað þér. Þetta er eiginlega andstæða Metal Machine Music sem ég gerði árið 1975," segir Lou en sú plata var 64 mínútna verk af hávaðapælingum, mikið um hægt og hraðað gítarfeedback. Plata sem Sonic Youth voru undir miklum áhrifum frá. "Eina ástæðan fyrir því að mig langar til þess að gefa þetta út er að slatti af fólki heyrði þetta og bað mig um að fjölfalda þetta fyrir sig." Tilfinningar á filmu Lou Reed gaf nýverið út stærðarinnar ljósmyndabók, Emotion in Action, í samstarfi við Gerhard Steidl sem er samkvæmt Lou einn af betri prenturum heims í dag. Sýnishorn úr bókinni er að finna á heimasíðu kappans, loureed.com. "Ég fæ tækifæri til þess að ferðast mikið, þannig fæ ég að sjá hluti sem annað fólk fær kannski ekki að sjá. Þess vegna tek ég ljósmyndir af þeim." En áttu einhverjar góðar myndir frá rokkárum þínum? "Nei, ég tek ekki þess konar myndir. Ég myndi ekki fara út í það að taka myndir til þess að skjalfesta líf mitt." Ekki mikið fyrir nostalgíu? "Nei, ég hef engan áhuga á því. Ég er keyrður áfram af löngun í fegurð, glæsileika og þokka. Ég reyni því að fanga tilfinningar á filmu. Ég vil skapa með myndavélinni." En þú ert náttúrulega orðinn stór hluti af rokksögunni, er ekkert undarlegt að fólk sé að gera kvikmyndir um atburði í lífi þínu? Nýjasta dæmið er mynd sem verið er að gera um Nico. "Ég hef engar tilfinningar tengdar þessu. Þetta voru mjög áhugaverðir einstaklingar. Það er svo mikið um fjölmiðla núna að þá sárvantar viðfangsefni." Vantar þá þá einhverja helgimynd? "Þá vantar eitthvað til þess að fylla upp í tímann í sjónvarpinu. Fljótlega verða þeir byrjaðir að gera heimildarmyndir um mýs." Af hverju heldurðu að pressan hafi alltaf svona mikinn áhuga á slæmri hegðun? Eins og eiturlyfjanotkun, kynlíf og annað slíkt? "Örugglega vegna þess að þetta eru hlutir sem venjulegt fólk gerir ekki. Milton skrifaði bók sem heitir Paradísarmissir, og svo Paradís endurheimt. Flestir lesa bara Paradísamissi. Ég held að flestir hafi áhuga á villtu hliðinni, en þá langar ekkert að búa þar." Hvernig hugsar þú um fortíðina? "Ég geri það bara ekki. Af hverju ætti ég að gera það? Ég vil bara fara áfram. Það er til orðatiltæki sem segir að sá sem þekkir ekki söguna er dæmdur til þess að endurtaka hana. Ég vil heldur ekki endurtaka sjálfan mig." Næst berst talið að tónleikunum hér á Íslandi. Lou spyr hvort hann ætti að spila gömul lög eða ný og ég sting upp á að hann taki beggja blands, þar sem Íslendingar séu margir forvitnir á nýja hluti. "Það er gott heyra. Ef fólk vill heyra gamalt efni, þá hef ég ekkert á móti því að spila þau annað slagið. Þegar ég fer á tónleika vil ég yfirleitt heyra eitthvað af slögurunum." En hvað finnst þér um það þegar fólk er að nota lög á borð við Perfect Day í brúðkaupum, er það ekki örugglega rangtúlkun á textanum? "Ég er hamingjusamur með að hafa samið eitthvað sem gerir það hamingjusamt. Það er hægt að túlka textann á margan hátt. Það fer bara eftir þeirri persónu sem túlkar hann. Það er eina leiðin til þess að horfa á þetta." Er einhver séns að þú takir það lag á tónleikunum? "Alveg bókað mál. Hvernig er enskan þarna?" Góð, hér tala flestir ensku. "Ætti ég að tala hægt?," segir hann með sínum afslappaða tón og hlær. Vissi ekki að hann væri fær um annað. biggi@frettabladid.is
Mest lesið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Lífið „Maður er sjálfur ákveðið vörumerki“ Lífið Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Lífið Fleiri fréttir Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Sjá meira