Efst í huga Ástþórs Magnússonar 23. júní 2004 00:01 Sameiningartákn Forsetinn á að leiða þjóðina saman í góðum málum sem geta aukið veg og virðingu okkar bæði á heimavelli sem og á alþjóðlegum vettvangi. Okkur býðst nú það tækifæri að forseti Íslands verði alþjóðlegt sameiningartákn friðar og mannréttindi yrði ég kjörinn til embættisins. Hugmyndin hefur fengið víðtækan stuðning Nóbelsverðlaunahafa, fræðimanna og framáfólks í friðarmálum um allan heim. Aldrei fyrr hefur Íslendingum boðist slíkt tækifæri sem nú að leiða stærsta baráttumál mannkyns og valda straumhvörfum á alþjóðlegum vettvangi. Virkara lýðræði Ég vil nota nútíma tækni til að þróa virkara lýðræði sem tryggir að forsetinn sé virkur öryggisventill þjóðarinnar í samræmi við stjórnarskrá. Slíkt vald má ekki misnota eins og Ólafur Ragnar Grímsson gerði með því að ganga erinda eins fyrirtækis. Ég vil að þetta vald verði notað af meiri ábyrgð og vil sem forseti beita áhrifavaldi forseta til að þróuð verði lög eða reglugerð um það undir hvaða kringumstæðum og með hvaða hætti slíkur málskotsréttur eigi rétt á sér. Þannig má hefja lýðræðið yfir dægurþras og deilur einstakra manna og gera málskotsréttinn virkan sem eðlilegan hluta af stjórnkerfi okkar. Ísland fyrirmynd friðar Heimsbyggðin kallar eftir leiðtoga sem getur leitt heiminn til friðar með nýjum áherslum og nýrri hugmyndafræði. Samtökin Friður 2000 hafa þróað slíka hugmyndafræði með skírskotun í þá einstöku sögu okkar að á Íslandi hafi búið vopnlaus þjóð við frið nær óslitið í þúsund ár, eftir að forfeður okkar tóku eitt merkasta skref mannkynssögunnar í friðarmálum á alþingisfundinum árið 1000. Þessi boðskapur er jafn mikilvægur og sjálft jólaguðspjallið hefur verið um aldir og forseti Íslands getur þannig orðið boðberi þúsund ára friðar til mannkyns og fært fram nánari hugmyndafræði um hvernig slíkt getur orðið. Fjölmiðlarnir Fjölmiðlar eru einn mesti áhrifavaldurinn í lýðræðisþjóðfélagi. Ég hef barist fyrir því að íslenskir fjölmiðlar fari með þetta vald af ábyrgð, en því miður hefur víða verið pottur brotinn hvað varðar forsetakosningarnar. Þetta var undirstrikað í viðtölum Stöðvar 2 í vikunni við unga kjósendur þar sem fram kom að flestir þeirra vissu ekki hvenær forsetakosningar fari fram, hverjir séu í framboði og þaðan af síður hvaða málefni er verið að fjalla um. Ljóst er af þessu að íslenskir fjölmiðlar hafa brugðist sínu hlutverki og því erum við á blússandi ferð inn í rússneskar forsetakosningar á laugardaginn kemur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ef fyrirtæki nota AI til að fækka fólki, eru þau að hugsa of smátt Vaka Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar flugmanns Sara Hlín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Mygluna burt úr Laugalækjarskóla Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Skoðun Borgum ekki skuldir óreiðuríkja Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hvað ertu hræddur við, Jón Pétur Zimsen? Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hvað er hægt að semja um? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð erum við? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Alþjóðlegi mjólkurdagurinn 2026 Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsum stærra Magnús Lyngdal Magnússon skrifar Skoðun Leigufélög eignast fasteignamarkaðinn, fjárfestar eignast Garðabæ Baldur Jezorski skrifar Sjá meira
Sameiningartákn Forsetinn á að leiða þjóðina saman í góðum málum sem geta aukið veg og virðingu okkar bæði á heimavelli sem og á alþjóðlegum vettvangi. Okkur býðst nú það tækifæri að forseti Íslands verði alþjóðlegt sameiningartákn friðar og mannréttindi yrði ég kjörinn til embættisins. Hugmyndin hefur fengið víðtækan stuðning Nóbelsverðlaunahafa, fræðimanna og framáfólks í friðarmálum um allan heim. Aldrei fyrr hefur Íslendingum boðist slíkt tækifæri sem nú að leiða stærsta baráttumál mannkyns og valda straumhvörfum á alþjóðlegum vettvangi. Virkara lýðræði Ég vil nota nútíma tækni til að þróa virkara lýðræði sem tryggir að forsetinn sé virkur öryggisventill þjóðarinnar í samræmi við stjórnarskrá. Slíkt vald má ekki misnota eins og Ólafur Ragnar Grímsson gerði með því að ganga erinda eins fyrirtækis. Ég vil að þetta vald verði notað af meiri ábyrgð og vil sem forseti beita áhrifavaldi forseta til að þróuð verði lög eða reglugerð um það undir hvaða kringumstæðum og með hvaða hætti slíkur málskotsréttur eigi rétt á sér. Þannig má hefja lýðræðið yfir dægurþras og deilur einstakra manna og gera málskotsréttinn virkan sem eðlilegan hluta af stjórnkerfi okkar. Ísland fyrirmynd friðar Heimsbyggðin kallar eftir leiðtoga sem getur leitt heiminn til friðar með nýjum áherslum og nýrri hugmyndafræði. Samtökin Friður 2000 hafa þróað slíka hugmyndafræði með skírskotun í þá einstöku sögu okkar að á Íslandi hafi búið vopnlaus þjóð við frið nær óslitið í þúsund ár, eftir að forfeður okkar tóku eitt merkasta skref mannkynssögunnar í friðarmálum á alþingisfundinum árið 1000. Þessi boðskapur er jafn mikilvægur og sjálft jólaguðspjallið hefur verið um aldir og forseti Íslands getur þannig orðið boðberi þúsund ára friðar til mannkyns og fært fram nánari hugmyndafræði um hvernig slíkt getur orðið. Fjölmiðlarnir Fjölmiðlar eru einn mesti áhrifavaldurinn í lýðræðisþjóðfélagi. Ég hef barist fyrir því að íslenskir fjölmiðlar fari með þetta vald af ábyrgð, en því miður hefur víða verið pottur brotinn hvað varðar forsetakosningarnar. Þetta var undirstrikað í viðtölum Stöðvar 2 í vikunni við unga kjósendur þar sem fram kom að flestir þeirra vissu ekki hvenær forsetakosningar fari fram, hverjir séu í framboði og þaðan af síður hvaða málefni er verið að fjalla um. Ljóst er af þessu að íslenskir fjölmiðlar hafa brugðist sínu hlutverki og því erum við á blússandi ferð inn í rússneskar forsetakosningar á laugardaginn kemur.
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Skoðun Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen,Kristinn R. Þórisson skrifar
Skoðun Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson skrifar
Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Kerfislægt ofbeldi og pólitísk svik við ungu kynslóðina - tvöföld eignaupptaka Sigurður Sigurðsson Skoðun
Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson Skoðun