Fyllyrðingar Blairs voru rangar 11. júlí 2004 00:01
Fullyrðingar Tonys Blairs um hættuna af gjöreyðingarvopnum Íraka voru ekki einungis ýktar, heldur beinlínis rangar. Þetta er niðurstaða rannsóknar Butlers lávarðar. Blair er enn sagður íhuga afsögn. Tony Blair vísaði allri umræðu um afsögn sína á bug í gær. Engu að síður segir Mail on Sunday frá því, að Blair hafi í vikunni skipað starfsfólki sínu að útbúa gögn um hvernig hann gæti látið af embætti og falið öðrum manni starf forsætisráðherra. Stuðningsmenn Blairs eru sagðir hafa miklar áhyggjur af væntanlegri skýrslu Butlers lávarðar um aðdraganda Íraksstríðsins, og að hún verði olía á eld þeirra sem vilja Blair frá og Gordon Brown í Downingstræti tíu. Butler lávarður, sem rannsakað hefur upplýsingarnar sem liggja stríðinu í Írak til grundvallar, kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að fullyrðingar um að Saddam Hússein væri ógn við öryggi Bretlands hafi ekki verið á rökum reistar, enda mun breska leyniþjónustan MI 6 hafa dregið þá hluta skýrslu sinnar til baka nýlega. Butler lávarður mun hafa sagt samstarfsmönnum sínum að hann telji Blair ekki hafa tekið nægilega ábyrgð á atburðum í aðdraganda Íraksstríðsins. Í Downingstræti tíu hafi menn skotið sér undan því að tryggja, að upplýsingar sem lágu yfirlýsingum um hættuna af gjöreyðingavopnaeign Íraka til grundvallar, væru traustar. Þó að hermt sé að Blair sé ekki gagnrýndur beint í skýrslunni, eru tveir nánustu samstarfsmenn hans gagnrýndir harðlega. Annar þeirra er upplýsingafulltrúinn Alastair Campbell, sem er hættur, hinn er nánasti ráðgjafi Blairs, Jonathan Powell. Honum er meðal annars gefið að sök að hafa látið breyta lykilatriðum í upphaflegri skýrslu um gjöreyðingarvopnin. Kafli, þar sem komið hafi fram að Saddam og vopnabúr hans væru einingis hættuleg ef til stríðs kæmi í Írak, mun til dæmis ekki hafa verið Powell að skapi. S unday Telegraph segir Butler einnig muni gagnrýna stjórnunarstíl Blairs og fullyrða að hann hafi í raun afnumið ríkisstjórnina, því háttsettir embættismenn og sérfræðingar hafi oft hist í Downingstræti og tekið ákvarðanir Butler er sagður hafa haldið ákvaðnum köflum skýrslu sinnar leyndum fyrir skrifstofu forsætisráðherra til að koma í veg fyrir að ráðgjafar Blairs væru tilbúnir með útúrsnúning og viðbrögð um leið og skýrslan birtist, á miðvikudaginn kemur.
Erlent Fréttir Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Sjá meira