Erlent

Öryggisvörður skaut þrjá

Öryggisvörður í sendiráði Chile, á eyjunni Costa Rica, skaut þrjá manns til bana í gær og tók eigið líf í framhaldi. Síðdegis í gær tók hann tíu manns í gíslingu, embættismenn og aðra starfsmenn sendiráðsins. Lögregla telur að öryggisvörðurinn hafi skotið þrjá strax við upphaf atburðarins. Ekki er vitað hvað manninum gekk til en eftir nokkurra klukkutíma umsátur beindi hann byssu að sjálfum sér og tók eigið líf. Öryggisvörðurinn var 54 ára og hafði verið yfirmaður öryggismála í sendiráðinu í fimm ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×