Reykjavík er falleg borg 24. júní 2004 00:01 Umræðan - Óli Hilmar Jónsson, arkitekt, skrifar um Reykjavík. Björn Br. Björnsson reit næstum heila síðu í Fréttablaðið þriðjudaginn 22. júní um ljótleika Reykjavíkur. "Hvat er með álfum, hvat er með ásum?" Auðvitað geta allir haft sína skoðun á fríðleika borga og bæja alveg eins og sumum finnast sumar konur bara ansi huggulegar þegar aðrir þakka Guði fyrir að vera ekki giftir slíkum herfum. Staðreyndin er engu að síður sú að Reykjavík er falleg borg á margan hátt og miðbærinn, með tjörnina, Tjarnargötuna og Torfuna er sannarlega perla sem vert er að hlúa að. En það er rétt hjá Birni Brynjúlfi að það eru einstaka hús í þessum veislusal sem eru lítið augnayndi. Í heildina er Reykjavík samt sem áður falleg borg með ágæta heildarmynd og léttu yfirbragði. Í borginni eru falleg útivistarsvæði, með göngu- og hjólastígum sem vaxa með ári hverju. Stígurinn meðfram Ægisíðu um Fossvog sem tengist síðan göngustígakerfi Kópavogs og Seltjarnarness er til dæmis á heimsmælikvarða og þessum sveitarfélögum til mikils sóma og íbúunum þeirra til ánægju. Þess má geta sem vel er gert! Til mín komu í heimsókn fyrir nokkrum árum þekktir finnskir arkitektar. Þeim fannst Reykjavík falleg. Þeim fannst litagleðin á húsum og þökum skemmtileg. Og þeim fannst Hallgrímskirkjuturn fallegt kennileiti. Ef þetta hefðu verið bæir í Finnlandi hefðu þeir líklega viljað giftast Reykjavík, eins og Tómas heitinn skáld gerði raunar. Ég hef ferðast um ýmsar borgir, bæði vestan hafs og austan. Eftir því sem ég kynnist þeim betur, þykir mér vænna um Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Ég ætlaði mér aldrei að verða leikskólakennari Ásta Möller Sívertsen Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Umræðan - Óli Hilmar Jónsson, arkitekt, skrifar um Reykjavík. Björn Br. Björnsson reit næstum heila síðu í Fréttablaðið þriðjudaginn 22. júní um ljótleika Reykjavíkur. "Hvat er með álfum, hvat er með ásum?" Auðvitað geta allir haft sína skoðun á fríðleika borga og bæja alveg eins og sumum finnast sumar konur bara ansi huggulegar þegar aðrir þakka Guði fyrir að vera ekki giftir slíkum herfum. Staðreyndin er engu að síður sú að Reykjavík er falleg borg á margan hátt og miðbærinn, með tjörnina, Tjarnargötuna og Torfuna er sannarlega perla sem vert er að hlúa að. En það er rétt hjá Birni Brynjúlfi að það eru einstaka hús í þessum veislusal sem eru lítið augnayndi. Í heildina er Reykjavík samt sem áður falleg borg með ágæta heildarmynd og léttu yfirbragði. Í borginni eru falleg útivistarsvæði, með göngu- og hjólastígum sem vaxa með ári hverju. Stígurinn meðfram Ægisíðu um Fossvog sem tengist síðan göngustígakerfi Kópavogs og Seltjarnarness er til dæmis á heimsmælikvarða og þessum sveitarfélögum til mikils sóma og íbúunum þeirra til ánægju. Þess má geta sem vel er gert! Til mín komu í heimsókn fyrir nokkrum árum þekktir finnskir arkitektar. Þeim fannst Reykjavík falleg. Þeim fannst litagleðin á húsum og þökum skemmtileg. Og þeim fannst Hallgrímskirkjuturn fallegt kennileiti. Ef þetta hefðu verið bæir í Finnlandi hefðu þeir líklega viljað giftast Reykjavík, eins og Tómas heitinn skáld gerði raunar. Ég hef ferðast um ýmsar borgir, bæði vestan hafs og austan. Eftir því sem ég kynnist þeim betur, þykir mér vænna um Reykjavík.
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar
Ég kann að skipta um bleyju og ætti því að fá starfsleyfi sem leikskólakennari Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun