Viðskipti

Herferð Íslandsbanka vann Áruna

Auglýsingaherferðin Mín áskorun hlaut verðlaun í flokknum ÁRA á ÍMARK deginum í dag. Verðlaunin eru veitt fyrir árangursríkustu herferðina. Auglýsandi er Íslandsbanki og sá ENNEM auglýsingastofa um verkefnið.

Viðskipti innlent

Hafa unnið að komu H&M í um fjögur ár

Stjórnendur fasteignafélagsins Regins hafa unnið að komu H&M hingað til lands í rúmlega þrjú og hálft ár. Reginn, sem á meðal annars Smáralindina, eyddi "miklum fjármunum“ í að útbúa vönduð gögn til að selja sænska fatarisanum hugmyndina um að opna hér á landi

Viðskipti innlent

„Samkeppni í verslun á leið til landsins í fyrsta sinn í 1100 ár“

"Nú er viðskiptalíf á Íslandi í uppnámi enda margt að gerast. Stórverslanir eins og H&M og Costco eru komnar vel á veg með að opna útibú hér á landi. Þar fyrir utan hafa margir Íslingar tekið upp þann ósið að kaupa fatnað og annan óþarfa á Netinu,“ segir Þráinn Bertelsson, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður, í hæðnum pistli á heimasíðu sinni sem ber fyrirsögnina Ógnin er yfirvofandi – vágestur á leið til landsins.

Viðskipti innlent

Rúna Dögg Cortez í framkvæmdastjórn Brandenburg

Rúna Dögg Cortez, stafrænn stjórnandi hjá auglýsingastofuni Brandenburg, hefur tekið sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Fyrir í stjórninni eru þeir Ragnar Gunnarsson framkvæmdastjóri og Hörður Lárusson teiknistofustjóri. Rúna Dögg segist í tilkynningu fyrirtæksins fagna því að vera komin í framkvæmdastjórn og þeim verkefnum sem því fylgja.

Viðskipti innlent

Bein útsending: Ný skýrsla um íslenska ferðaþjónustu

Hver er staða og hverjar eru horfur í íslenskri ferðaþjónustu? Fræðslufundur í tilefni af nýrri skýrslu Íslandsbanka. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, iðnaðar og nýsköpunar, taka þátt í umræðum.

Viðskipti innlent

Konur leiða uppbyggingu Alvogen og Alvotech

Á árlegum kynningarfundi Alvogen og Alvotech í gær kom fram í ræðu Róberts Wessman, forstjóra Alvogen og stofnanda Alvotech, að um 90 prósent af hagnaði fyrirtækisins á síðasta ári hafi komið frá mörkuðum sem stýrt er af konum.

Viðskipti innlent