Fyrrverandi forstjóri Straums í stjórn Arion banka Hörður Ægisson skrifar 9. mars 2017 07:37 Jakob Ásmundsson var forstjóri Straums fjárfestingabanka á árunum 2013 til 2015.
Jakob Már Ásmundsson, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestingarbanka, sest í stjórn Arion banka á aðalfundi sem verður haldinn í dag, fimmtudag. Hann kemur inn í stjórn bankans í stað Benedikts Olgeirssonar sem hefur verið í stjórn Arion banka frá því í desember 2013. Stjórnin helst að öðru leyti óbreytt en Bandaríkjamaðurinn John P. Madden, framkvæmdastjóri hjá Kaupþingi, sem á 87 prósent í bankanum, kom nýr inn í stjórn Arion banka fyrir tæplega sex mánuðum. Fjölgaði stjórnarmönnum þá úr sjö í átta. Jakob er með doktorsgráðu í iðnaðarverkfræði frá Purdue-háskóla í Bandaríkjunum. Í dag starfar hann sem lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og situr í stjórn tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds. Hann tók við sem forstjóri Straums í ársbyrjun 2013 en lét af því starfi samhliða því að bankinn sameinaðist MP banka sumarið 2015, sem síðar varð Kvika banki. Áður hafði Jakob meðal annars gegnt starfi fjármálastjóra eignaumsýslufélagsins ALMC og var hann í hópi nokkurra fyrrverandi lykilstjórnenda félagsins sem fengu hundruð milljóna króna hver í sinn hlut þegar félagið greiddi út samanlagt yfir þrjá milljarða í bónusa til starfsmanna í desember 2015. Kaupþing vinnur nú að því, eins og áður hefur verið greint frá í Fréttablaðinu, að ganga frá sölu á um 50 prósenta hlut í Arion banka til bandarískra fjárfestingarsjóða og lífeyrissjóða. Kaupverðið verður á genginu rúmlega 0,8 miðað við eigið fé bankans, eða sem nemur um 85 milljörðum, en stefnt er að því að viðskiptin klárist á allra næstu vikum. Í kjölfarið verður sá hlutur Kaupþings sem eftir stendur, á bilinu 30-40 prósent, seldur í almennu útboði og bankinn skráður á markað, líklega næstkomandi haust.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira