Viðskipti Evrubankinn fylgir fordæminu Evrópski seðlabankinn fylgdi fordæmi nokkurra seðlabanka í dag og ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Áður hafði Seðlabanki Íslands og bankar í Bretlandi, Kanada, Brasilíu og Ástralíu ákveðið að halda vöxtum kyrrum í ljósi hræringa á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 6.9.2007 11:52 Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósentum. Ákvörðunin kom ekki á óvart enda höfðu flestir reiknað með þessari niðurstöðu. Fyrr á árinu var hins vegar gert ráð fyrir 25 punkta vaxtahækkun en hún var endurskoðuð í ljósi óróleika á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 6.9.2007 11:42 Verðbólguhorfur til skamms tíma lakari en áður Verðbólguhorfur til skamms tíma eru lakari en við síðustu vaxtaæákvörðun bankastjórnar Seðlabankans og bankinn telur ekki unnt að lækka stýrivexti fyrr en á fyrri helmingi næsta árs. Þetta kom fram í máli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra þegar hann rökstuddi þá ákvörðun Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hann sagðist aðspurður ekki finna fyrir þrýstingi á upptöku evrunnar líkt og viðskiptaráðherra. Viðskipti innlent 6.9.2007 11:28 Apple kynnir nýjan iPod Snertiskjár og þráðlaus netaðgangur eru meðal þess sem mun prýða nýjustu útgáfu Ipod spilarans vinsæla. Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti gripinn á fjölmiðlafundi í gær. Af sérstakri hógværð lýsti Jobs spilaranum sem ,,ótrúlegum" og kallaði hann eitt sjö undra veraldar. Viðskipti erlent 6.9.2007 10:51 Stærsti prentsamningur Íslands í höfn Prentsmiðjan Oddi og Birtíngur útgáfufélag ehf. hafa gert með sér samning um prentun allra tímarita Birtíngs. Þetta mun vera einn stærsti prentsamningur sem gerður hefur verið hér á landi og sá stærsti sem gerður hefur verið um prentun tímarita. Samkvæmt honum prentar Oddi yfir 220 tölublöð af tímaritum Birtíngs á ári. Virði samningsins hefur ekki verið gefið upp. Viðskipti innlent 6.9.2007 10:40 Líkur á óbreyttum stýrivöxtum í Evrópu Vaxtaákvörðunardagur er hjá Englandsbanka í Bretlandi og evrópska seðlabankanum í dag. Greinendur gera fastlega ráð fyrir því að vextir verði óbreyttir í skugga hræringa á fjármálamörkuðum. Seðlabankinn hér á landi, í Brasilíu, Kanada og Ástralíu hafa allir haldið stýrivöxtum óbreyttum. Líkur eru hins vegar á stýrivaxtalækkun í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 6.9.2007 09:23 Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,3 prósentum. Þetta er í takt við væntingar greinenda en þeir gera ekki ráð fyrir að breyting verði á vöxtunum fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Viðskipti innlent 6.9.2007 09:00 Hreiðar og Sigurður með nær tvöföld laun forstjóra Nokia Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri sama banka eru hæstlaunuðu stjórnendur í skráðum hlutafélögum á Norðurlöndum, með þó nokkurt forskot á næsta mann. Viðskipti innlent 6.9.2007 08:44 Peningaskápurinn ... Indverska samstæðan United Breweries, sem meðal annars á eitt af stærstu brugghúsum heims og er þekktast fyrir Kingfisher-bjórinn, hefur keypt skoska vískíframleiðandann Whyte & Mackay. Kaupverð nemur 595 milljónum punda, jafnvirði 77 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 6.9.2007 00:01 Hlutabréf í Bandaríkjunum lækka í verði Verð á hlutabréfum á bandarískum mörkuðum lækkaði í dag. Við lokun markaða hafði Dow Jones vísitalan fallið um 1,07 prósent. Talið er að hræringar á bandaríska fasteignamarkaðinum hafi valdið lækkuninni í dag. Viðskipti erlent 5.9.2007 20:14 Fresta tilraunaflugi á Dreamliner enn frekar Forsvarsmenn Boeing-flugvélaframleiðandans tilkynntu í dag að félagið þyrfti að fresta fyrsta flugi Boeing 787 þotunnar, sem einnig hefur verið nefnd Dreamliner, enn frekar. Ástæðan er sú að það hefur tekið lengri tíma en áætlað var að gera fyrstu vélina klára. Viðskipti erlent 5.9.2007 16:46 Tryggingamiðstöðin hf hækkaði um 11,85% Gengi hlutabréfa í Tryggingamiðstöðinni hf. hækkaði um 11,85% í dag. Glitnir Banki keypti tæplega fjörutíu prósenta hlut í Tryggingamiðstöðinni í morgun. Straumur- Burðarás lækkaði um 0,74% Viðskipti innlent 5.9.2007 16:41 Markaðurinn 5. sept Atvinnulíf 5.9.2007 12:56
Evrubankinn fylgir fordæminu Evrópski seðlabankinn fylgdi fordæmi nokkurra seðlabanka í dag og ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Áður hafði Seðlabanki Íslands og bankar í Bretlandi, Kanada, Brasilíu og Ástralíu ákveðið að halda vöxtum kyrrum í ljósi hræringa á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 6.9.2007 11:52
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,75 prósentum. Ákvörðunin kom ekki á óvart enda höfðu flestir reiknað með þessari niðurstöðu. Fyrr á árinu var hins vegar gert ráð fyrir 25 punkta vaxtahækkun en hún var endurskoðuð í ljósi óróleika á fjármálamörkuðum. Viðskipti erlent 6.9.2007 11:42
Verðbólguhorfur til skamms tíma lakari en áður Verðbólguhorfur til skamms tíma eru lakari en við síðustu vaxtaæákvörðun bankastjórnar Seðlabankans og bankinn telur ekki unnt að lækka stýrivexti fyrr en á fyrri helmingi næsta árs. Þetta kom fram í máli Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra þegar hann rökstuddi þá ákvörðun Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hann sagðist aðspurður ekki finna fyrir þrýstingi á upptöku evrunnar líkt og viðskiptaráðherra. Viðskipti innlent 6.9.2007 11:28
Apple kynnir nýjan iPod Snertiskjár og þráðlaus netaðgangur eru meðal þess sem mun prýða nýjustu útgáfu Ipod spilarans vinsæla. Steve Jobs, forstjóri Apple, kynnti gripinn á fjölmiðlafundi í gær. Af sérstakri hógværð lýsti Jobs spilaranum sem ,,ótrúlegum" og kallaði hann eitt sjö undra veraldar. Viðskipti erlent 6.9.2007 10:51
Stærsti prentsamningur Íslands í höfn Prentsmiðjan Oddi og Birtíngur útgáfufélag ehf. hafa gert með sér samning um prentun allra tímarita Birtíngs. Þetta mun vera einn stærsti prentsamningur sem gerður hefur verið hér á landi og sá stærsti sem gerður hefur verið um prentun tímarita. Samkvæmt honum prentar Oddi yfir 220 tölublöð af tímaritum Birtíngs á ári. Virði samningsins hefur ekki verið gefið upp. Viðskipti innlent 6.9.2007 10:40
Líkur á óbreyttum stýrivöxtum í Evrópu Vaxtaákvörðunardagur er hjá Englandsbanka í Bretlandi og evrópska seðlabankanum í dag. Greinendur gera fastlega ráð fyrir því að vextir verði óbreyttir í skugga hræringa á fjármálamörkuðum. Seðlabankinn hér á landi, í Brasilíu, Kanada og Ástralíu hafa allir haldið stýrivöxtum óbreyttum. Líkur eru hins vegar á stýrivaxtalækkun í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 6.9.2007 09:23
Seðlabankinn heldur stýrivöxtum óbreyttum Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 13,3 prósentum. Þetta er í takt við væntingar greinenda en þeir gera ekki ráð fyrir að breyting verði á vöxtunum fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári. Viðskipti innlent 6.9.2007 09:00
Hreiðar og Sigurður með nær tvöföld laun forstjóra Nokia Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, og Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri sama banka eru hæstlaunuðu stjórnendur í skráðum hlutafélögum á Norðurlöndum, með þó nokkurt forskot á næsta mann. Viðskipti innlent 6.9.2007 08:44
Peningaskápurinn ... Indverska samstæðan United Breweries, sem meðal annars á eitt af stærstu brugghúsum heims og er þekktast fyrir Kingfisher-bjórinn, hefur keypt skoska vískíframleiðandann Whyte & Mackay. Kaupverð nemur 595 milljónum punda, jafnvirði 77 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 6.9.2007 00:01
Hlutabréf í Bandaríkjunum lækka í verði Verð á hlutabréfum á bandarískum mörkuðum lækkaði í dag. Við lokun markaða hafði Dow Jones vísitalan fallið um 1,07 prósent. Talið er að hræringar á bandaríska fasteignamarkaðinum hafi valdið lækkuninni í dag. Viðskipti erlent 5.9.2007 20:14
Fresta tilraunaflugi á Dreamliner enn frekar Forsvarsmenn Boeing-flugvélaframleiðandans tilkynntu í dag að félagið þyrfti að fresta fyrsta flugi Boeing 787 þotunnar, sem einnig hefur verið nefnd Dreamliner, enn frekar. Ástæðan er sú að það hefur tekið lengri tíma en áætlað var að gera fyrstu vélina klára. Viðskipti erlent 5.9.2007 16:46
Tryggingamiðstöðin hf hækkaði um 11,85% Gengi hlutabréfa í Tryggingamiðstöðinni hf. hækkaði um 11,85% í dag. Glitnir Banki keypti tæplega fjörutíu prósenta hlut í Tryggingamiðstöðinni í morgun. Straumur- Burðarás lækkaði um 0,74% Viðskipti innlent 5.9.2007 16:41
Óbreyttir stýrivextir í Ástralíu Seðlabanki Ástralíu hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 6,5 prósentum að sinni vegna aðstæðna á fjármálamörkuðum. Greinendur höfðu gert ráð fyrir því að vextirnir myndu hækka. Vaxtaákvörðunardagur er í Kanada í dag en á evrusvæðinu, í Bretlandi og hjá Seðlabankanum hér á morgun. Gert er ráð fyrir því að bankarnir feti allir í fótspor ástralska seðlabankans og haldi vöxtum óbreyttum. Viðskipti innlent 5.9.2007 12:30
Abramovich kaupir Airbus A380 Milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi enska knattspyrnuliðsins Chelsea, ætti að geta haft rúmt um sig í ferðum sínum um heiminn á næstu misserum því hann hefur fest kaup á Airbus A380 sem er stærsta farþegavél heims. Viðskipti erlent 5.9.2007 11:34
Glitnir kaupir 40 prósent í TM og selur áfram Glitnir hefur keypt nærri 40 prósenta hlut í Tryggingamiðstöðinni fyrir um 20 milljarða króna og hyggst selja hann til hóps fjárfesta. Viðskipti innlent 5.9.2007 10:51
Sparisjóður Bolungarvíkur keyrir á verðbréfaeign Sparisjóður Bolungarvíkur hagnaðist um 230 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 62 milljónir á sama tíma í fyrra. Þetta jafngildir því að hagnaðurinn hafi tæplega fjórfaldast á milli ára. Mestu munar um tekjur af veltufjármunum og öðrum eignum en vaxta- og þjónustutekjur drógust saman á milli ára. Viðskipti innlent 5.9.2007 10:24
Lækkun í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa lækkaði almennt við opnun viðskipta í Kauphöllinni í dag. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 0,5 prósent og stendur hún í 8.241 stigi. Þróunin er í takti við lækkun á hlutabréfamörkuðum í Evrópu og í Japan. Gengi bréfa í Marel hækkaði mest í fyrstu viðskiptum dagsins en gengi bréfa í Straumi-Burðarási lækkaði mest. Viðskipti innlent 5.9.2007 10:13
Íbúðalánasjóður lánaði 5,4 milljarða í ágúst Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu tæpum 5,4 milljörðum króna í ágúst. Þar af voru um 900 milljónir vegna leiguíbúðalána en almenn útlán voru tæplega 4,5 milljarðar króna. Á sama tíma í fyrra námu heildarútlánin hins vegar 3,2 milljörðum króna. Meðallán almennra útlána voru tæpar 9,5 milljónir króna í mánuðinum, að því er fram kemur í mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs. Viðskipti innlent 5.9.2007 09:57
Dregur úr halla á vöruskiptum Vöruskipti voru óhagstæð um tólf milljarða króna í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Í sama mánuði í fyrra voru vöruskipti hins vegar neikvæð um 14,4 milljarða króna. Gangi þetta eftir hefur dregið úr halla á vöruskiptum upp á 2,4 milljarða króna á milli ára. Viðskipti innlent 5.9.2007 09:28
Yahoo styrkir stöðuna gegn Google Bandaríska netveitan Yahoo hefur keypt fyrirtækið BlueLithium, sem einbeitir sér að markaðssetningu á netinu. Kaupverð nemur 300 milljónum bandaríkjadala, tæpum 19,5 milljörðum íslenskra króna. Með kaupunum hyggst fyrirtækið styrkja stöðu sína í samkeppninni við netrisann Google. Viðskipti erlent 5.9.2007 09:10
Lesið í garnir markaðar Maður væri nú sennilega ekki að fást við það sem maður fæst við, ef ekki væri vegna þess að maður er vel læs á atburði líðandi stunda og auk þess spámannlega vaxinn. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Greiða allan hagnaðinn út til hluthafa Íslensk verðbréf er sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem er starfrækt á Akureyri og fagnar tuttugu ára afmæli um þessar mundir. Eggert Þór Aðalsteinsson ræddi við Sævar Helgason, framkvæmdastjóra ÍV, sem segir markið sett á að eignir í stýringu fari yfir 100 milljarða á árinu. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Ríkasti hundurinn? Og aftur að „mini-görkunum“. Yngstu börnin á topp tíu listanum eru þriggja ára tvíburar vodkakóngsins og fagurkerans Rustam Tariko. Blessuð börnin gætu reyndar þurft að skipta arfinum með hundi sem föður þeirra er afar annt um enda klæðir hann ferfætlinginn í dýrasta skart. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Guðlast í Símanum? Í gær birti fréttavefurinn mbl.is frétt þess efnis að biskupi Íslands, Karli Sigurbjörnssyni, þætti nýjar auglýsingar fyrirtækisins ósmekklegar. Auglýsingarnar sýna Jesú og lærisveina hans við síðustu kvöldmáltíðina. Hann uppgötvar að Júdas er ekki við matarborðið en er ekki lengi að hafa uppi á honum með splunkunýjum 3G-símanum sínum. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Erlend sérfræðiþekking lykill að samkeppnishæfni Íslands Hingað til hefur lítið verið vitað um líðan þeirra erlendu sérfræðinga sem eru við störf á Íslandi. Þeir skipta þó hundruðum og þeim fer ört fjölgandi. Ný könnun Capacent, sem kynnt var á morgunverðarfundi Fjárfestingarstofu og Útflutningsráðs í gær, varpar nýju ljósi á þennan hóp. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir ræddi við framsögumenn fundarins um þýðingu þess fyrir íslenskt atvinnulíf að laða að erlenda sérþekkingu. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Stoðir eru stærsta fasteignafélag á Norðurlöndum Hið nýsameinaða félag Stoða og Keops er með starfsemi í fjórum löndum og eru eignir þess metnar á 381,2 milljarða íslenskra króna. Stoðir eru nú skilgreindar sem norður-evrópskt fasteignafélag. Jón Skaftason sat fréttamannafund í höfuðstöðvum Keops í útjaðri Kaupmannahafnar og ræddi við Skarphéðin Berg Steinarsson, forstjóra Stoða, sem segir viðhorf Dana í garð íslenskra fjárfesta batna hægt og örugglega. Eftir samrunann eiga um þrjú hundruð danskir fjárfestar hlut í Stoðum. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Litlir milljónerar Rússneska dagblaðið Finans hefur tekið saman lista um þau börn rússneskra nýríkra auðkýfinga sem erfa muni mestan auð að foreldrum sínum látnum. Þau börn ein eru gjaldgeng á listann sem munu erfa jafnvirði eins milljarðs Bandaríkjadala, rúma 64 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Nýr forstjóri stýrir fjöreggi Marel Food Systems Sigsteinn P. Grétarsson hefur verið ráðinn forstjóri Marels ehf., einnar af fjórum meginstoðum Marel Food Systems. Forstjórinn segir þessa einingu fyrirtækisins fjöreggið sem hafi sinnt nýsköpun í matvælavinnslu frá fyrstu tíð. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ræddi við Sigstein um starfið hjá Marel og þýðinguna sem samþætting og skipulagsbreytingar hjá fyrirtækinu fela í sér. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01
Erlendir séfræðingar CCP nauðsynlegir „Við erum að flytja sérfræðingana hingað til Íslands í bílförmum,“ segir Helgi Már Þórðarson, starfsmannastjóri CCP, án þess að ýkja verulega. CCP kæmist ekki af öðruvísi en að ráða erlenda starfsmenn. Jafnvel þegar auglýst er hér á landi sækja fáir með réttu reynsluna og menntunina um. Viðskipti innlent 5.9.2007 00:01