Erlent
Níu sekir um heiðursmorð Erlent 28.6.2006 05:45 Í kapphlaup um gjafmildi Rausnarleg gjöf bandaríska auðkýfingsins Warren Buffetts gæti orðið fleiri auðkýfingum fyrirmynd til þess að gefa stóran hluta auðæfa sinna til líknarmála af ýmsu tagi. Erlent 28.6.2006 05:00 Bjarndýrið fellt í Bæjaralandi Brúnó, björninn ítalskættaði sem hefur reikað um skóga Bæjaralands undanfarinn mánuð, var skotinn í gær og drapst í kjölfarið, tveggja ára að aldri. Dýraverndunarsinnar eru reiðir vegna málsins og hefur umhverfisráðherra Bæjaralands, sem fyrirskipaði drápið, fengið morðhótanir í kjölfarið. Áður höfðu yfirvöld ákveðið að drepa Brúnó ekki, en skiptu um skoðun. Erlent 28.6.2006 03:45 Réttað yfir Naomi Campbell Ofurfyrirsætan Naomi Campbell mætti fyrir rétt á Manhattan í New York í dag, vegna kæru eins aðstoðarmanna hennar á hendur henni. Fjöldi fjölmiðla beið fyrir utan en réttarhöldin fóru fram fyrir luktum dyrum. Erlent 27.6.2006 22:37 Herferð gegn eyðni í höfuðborg Bandaríkjanna Borgaryfirvöld í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna hafa hrundið af stað herferð til greiningar eyðnismiti til þess að auka vitund almennings um sjúkdóminn. Nú getur fólk kannað hvort það sé smitað, með einföldu munnvatnsprófi sem upplýsir á 20 mínútum hvort fólk sé smitað eða ekki. Erlent 27.6.2006 22:00 Áfram verður réttað yfir Saddam Saddam fær að sitja áfram undir réttarhöldum út af ódæðisverkum í forsetatíð hans. Hæstiréttur í Bagdad tilkynnti í dag að réttarhöld yfir Saddam Hussein vegna helfarar gegn Kúrdum í Anfal-héraði muni hefjast í ágúst þegar áætlað er að réttarhöldunum vegna Dujail sem nú standa yfir verði lokið. Erlent 27.6.2006 20:30 Rice í heimsókn í Pakistan Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleeza Rice, kom í dag í heimsókn til Pakistans, en hún mun funda með Musharraf, forseta Pakistans á morgun. Rice sagðist myndu ræða við Musharraf um það hvort hann ætlaði ekki örugglega að standa við loforð sitt um að halda lýðræðislegar kosningar á næsta ári. Erlent 27.6.2006 20:00 Hamas bera til baka fréttir um viðurkenningu Ísraelsríkis Hamas-liðar segja samkomulag fylkinganna Hamas og Fatah sem tilkynnt var í dag ekki fela í sér nokkra viðurkenningu Hamas-samtakanna á Ísraelsríki. Samkomulagið miðar að því að stöðva innbyrðis átök Palestínumanna af gagnstæðum fylkingum. Samkomulag flokkanna hefur ekki enn verið gert opinbert í heild sinni. Erlent 27.6.2006 19:47 Japansforsætisráðherra heimsækir kónginn í Graceland Forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, kom í dag í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og Kanada. Hann mun ræða við fyrirmenn þar um Norður-Kóreu, öryggismál, efnahagsmál, - og um Elvis Presley. Erlent 27.6.2006 19:30 Evrópuráðið gagnrýnir leynifangelsin Evrópuráðið gagnrýndi harðlega í ályktun sinni í dag þau lönd sem rekið hafa leynifangelsi eða heimilað fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA um lofthelgi sína. Erlent 27.6.2006 18:30 « ‹ ›
Ástin er engin tilviljun Ástin er engin tilviljun. Það er að minnsta kosti niðurstaða sænskrar rannsóknar. Erlent 28.6.2006 19:03
Skriðdrekar Ísraela halda inn í Gaza Ísraelar sendu skriðdreka yfir landamærin inn á Gaza ströndina nú síðdegis. Loftárásir á stöðvar Palestínumanna héldu áfram í dag eftir árásir á raforkuver og brýr í nótt. Óttast er að blóðbað kunni að vera í uppsiglingu. Erlent 28.6.2006 18:57
Lík belgískra telpna fundin Lögreglan í Belgíu hefur nú fundið lík tveggja stúlkna sem leitað hefur verið að í rúmar tvær vikur. Lík stúlknanna fundust með nokkurra metra millibili í háu grasi við járnbrautarteina. Niðurstöður krufningar verða birtar innan skamms en lögreglan telur ekki líklegt að stúlkurnar hafi látist af slysförum. Erlent 28.6.2006 17:35
Pútín hefnir fyrir morð rússneskra sendifulltrúa Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, hefur skipað öryggislögreglu landsins að hafa upp á morðingjum fjögurra Rússa sem rænt var í Írak. Forsetinn hefur, að sögn rússnesku fréttastofunnar Interfax, skipað lögreglumönnunum að myrða þá. Rússunum, sem voru sendifulltrúar í Bagdad, var rænt fyrir mánuði síðan og í þessari viku birti hópur, tengdur al-Qaeda hryðjuverkasamtökunum, myndbandsupptöku á vefnum sem sýnir morð þriggja þeirra. Rússar hafa staðfest að mennirnir fjórir hafi allir verið myrtir. Erlent 28.6.2006 15:05
ESB hraðar viðræðum við Króatíu Evrópusambandið ákvað í dag að hraða aðildarviðræðum við Króatíu en ekki Tyrkland. Ítarlegar viðræður um samkeppnismál fara nú fram við fulltrúa beggja ríkja en aðeins verður rætt um tollamál við Króata þar sem Evrópuráðið hefur ekki lokið við að bera tollalög Tyrkja saman við lög Sambandsins. Það sem torveldar málið einnig er að stjórnvöld í Ankara hafa ekki viljað leyfa siglingar eða flug frá Kýpur til Tyrklands. Erlent 28.6.2006 14:30
Ísraelsher réðist inn á Gaza Ísraelsher réðist inn í suðurhluta Gaza-svæðisins í gærkvöldi til að reyna að frelsa ísraelskan hermann sem hefur verið í gíslingu herskárra Palestínumanna frá því á sunnudag. Abbas, forseti Palestínu, segir innrásina stríðsglæp. Erlent 28.6.2006 12:15
Eddie látinn Hundurinn Moose sem lék Eddie í gamanþáttunum um Frasier er látinn. Moose kom fram í fyrsta þætti Frasier og alla tíð síðan, alls kom hann fram í 192 þáttum. Persóna Eddies í þáttunum var gríðarlega vinsæl og á tímabili fékk Moose fleiri aðdáendabréf en samleikarar hans. Mathilde Halberg, þjálfari Moose, segir hann hafa haft gríðarlega persónutöfra og að hans verði sárt saknað. John Mahoney sem leikur Marty Crane, föður Frasiers og eiganda Eddie, lýsti hundinum eitt sinn sem sönnum fagmanni. Harðduglegum leikara sem eyddi miklum tíma í að læra brögðin sín. Moose dó úr elli, rúmlega sextán ára. Erlent 28.6.2006 12:15
Paroubek víkur úr forsætisráðherraembættinu Jiri Paroubek, forsætisráðherra Tékklands og leiðtogi vinstrimanna þar í landi, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að víkja úr embætti í næstu viku. Þar með getur Vaclav Klaus, forseti, útnefnt Mirek Topolanke, leiðtoga hægrimanna, í embætti forsætisráðherra. Flokkur Topolanke vann sigur í þingkosningum í byrjun mánaðarins. Bandalag þriggja hægri flokka hefur þó ekki hreinan meirihluta heldur hundrað þingsæti af tvö hundruð og þarf því að treysta á stuðnings minnst eins þingmanns úr öðrum flokki. Erlent 28.6.2006 12:00
Tamíl-tígrar réðust á tvö skip Skæruliðar Tamíl-tígra réðust í morgun á tvö skip stjórnarhersins á Sri Lanka. Kveikt var í öðru þeirra. Um sjö hundruð manns hafa fallið í átökum í landinu frá áramótum en vopnahléssamkomulag er enn í gildi. Óttast er að átök síðustu vikna eigi eftir að valda borgarastyrjöld enn á ný. Erlent 28.6.2006 11:45
Lík beggja stúlknanna fundin Belgíska lögreglan hefur staðfest að lík beggja stúlknanna sem rænt var fyrr í mánuðinum hafi fundist. Stúlkurnar voru stjúpsystur, 7 og 10 ára, en þær hurfu frá borginni Liege 10. júní síðastliðinn. Karlmaður, sem grunaður er um að hafa átt þátt í hvarfi stúlknanna, gaf sig fram við lögreglu fyrir hálfum mánuði. Sá hefur tvívegis verið dæmdur fyrir að misnota börn. Lögregla fann stúlkurnar án upplýsinga frá manninum en hann heldur fram sakleysi sínu. Erlent 28.6.2006 11:45
Þrír handteknir í tengslum við slys í sýningarhöll í Póllandi Þrír menn hafa verið handteknir vegna mannskæðs slyss í sýningarhöll í Póllandi í janúar. Sextíu og fimm létust og hundrað og fjörutíu slösuðust þegar þak hallarinnar, sem er í bænum Katowice, hrundi undan snjóþunga. Fimm hundruð manns voru í höllinni þegar slysið varð. Erlent 28.6.2006 11:15
Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak Brotthvarf japanskra hermanna frá Írak heldur áfram. Það hófst á sunnudaginn þegar hluti japanska heraflans fór frá Suður-Írak yfir til Kúvæt. Í morgun mátti sjá nokkra vöruflutningabíla flytja búnað yfir landamærin. Sex hundruð japanskir hermenn hafa einungis sinnt hjálparstarfi í borginni Samawah í Suður-Írak síðan 2004. Þeir sinntu vegagerð, byggingu húsa og tóku þátt í að styrkja heilbrigðisþjónustu og hreinsa vatn í borginni. Óttast var um öryggi hermannanna þó friður væri á svæðinu. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í Írak. Erlent 28.6.2006 09:45
Óeirðir í Austur-Tímor í nótt Óeirðir í Dili, höfuðborg Austur-Tímor, í nótt benda til þess að hættuástand þar í landi sé ekki liðið hjá þó Mari Alkatiri, forsætisráðherra, hafi sagt af sér fyrr í vikunni. Hópar ungmenna létu grjóthnullungum rigna yfir búðir þar sem flóttamenn halda til og lögðu eld að fjölmörgum húsum víðsvegar um borgina. Ástralskir friðargæsluliðar hröktu um hundrað óeirðaseggi frá flóttamannabúðunum. Ekki er vitað hvort nokkur særðist. Erlent 28.6.2006 09:30
Ísraelsher ræðst inn á Gaza-svæðið Ísraelsher hefur tekið sér stöðu við Rafah á suður hluta Gaza-svæðisins. Herinn réðst inn á Gaza seint í gærkvöldi með það fyrir augum að frelsa ungan, ísraelskan hermann sem hefur verið í haldi herskárra Palestínumanna síðan á sunnudaginn. Erlent 28.6.2006 09:00
Stefndi í hörð átök Palestínumenn bjuggu sig undir innrás Ísraelsmanna á Gaza-svæðið í gærkvöldi og var vegum við landamærin lokað með jarðhleðslum og gaddavír. Erlent 28.6.2006 07:15
Viðurkenna ekki Ísraelsríki Abdel Rahman Zeidan, ráðherra í palestínsku heimastjórninni, leiðrétti fréttaflutning af samkomulagi milli Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingarinnar í gærkvöldi. BBC hefur eftir honum að í samkomulaginu milli Hamas og Fatah væri ekki minnst einu orði á viðurkenningu á Ísraelsríki. Þetta hefur enginn samþykkt. Þetta var aldrei á borðinu. Erlent 28.6.2006 07:00
Meint fangaflug CIA rannsakað áfram Evrópuráðsþingið samþykkti í gær að halda skyldi áfram rannsókn á ásökunum um að stjórnvöld í Evrópuríkjum hafi liðsinnt bandarísku leyniþjónustunni við að brjóta mannréttindi á föngum, grunuðum um að tengjast hryðjuverkum. Erlent 28.6.2006 07:00
Hörð gagnrýni á Tony Blair Charles Clarke, fyrrverandi innanríkisráðherra Tony Blair, gagnrýndi fyrrverandi samherja sinn harkalega í gær og sagði hann hafa misst sjónar á þeim stefnumálum og markmiðum sem Verkamannaflokkurinn hefði áður staðið fyrir. Gagnrýnin kemur í kjölfar slæmrar útreiðar Verkamannaflokksins í skoðanakönnun í vikunni. Erlent 28.6.2006 07:00
Mestur tími fer í að ræða spillingarmál Mikill órói er nú í Kúveit vegna væntanlegra þingkosninga í landinu. Kosningarnar fara fram þann 29. júní og eru sögulegar að því leyti að nú er konum í fyrsta skipti leyft að kjósa og bjóða sig fram til þings. Erlent 28.6.2006 06:30
Alls ekki stödd á flæðiskeri Skrifstofa Karls Bretaprins hefur skýrt frá því að tekjur prinsins á síðasta ári hafi numið rúmlega fjórtán milljónum punda, eða jafnvirði um það bil 1.900 milljóna íslenskra króna. Erlent 28.6.2006 06:15
Í kapphlaup um gjafmildi Rausnarleg gjöf bandaríska auðkýfingsins Warren Buffetts gæti orðið fleiri auðkýfingum fyrirmynd til þess að gefa stóran hluta auðæfa sinna til líknarmála af ýmsu tagi. Erlent 28.6.2006 05:00
Bjarndýrið fellt í Bæjaralandi Brúnó, björninn ítalskættaði sem hefur reikað um skóga Bæjaralands undanfarinn mánuð, var skotinn í gær og drapst í kjölfarið, tveggja ára að aldri. Dýraverndunarsinnar eru reiðir vegna málsins og hefur umhverfisráðherra Bæjaralands, sem fyrirskipaði drápið, fengið morðhótanir í kjölfarið. Áður höfðu yfirvöld ákveðið að drepa Brúnó ekki, en skiptu um skoðun. Erlent 28.6.2006 03:45
Réttað yfir Naomi Campbell Ofurfyrirsætan Naomi Campbell mætti fyrir rétt á Manhattan í New York í dag, vegna kæru eins aðstoðarmanna hennar á hendur henni. Fjöldi fjölmiðla beið fyrir utan en réttarhöldin fóru fram fyrir luktum dyrum. Erlent 27.6.2006 22:37
Herferð gegn eyðni í höfuðborg Bandaríkjanna Borgaryfirvöld í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna hafa hrundið af stað herferð til greiningar eyðnismiti til þess að auka vitund almennings um sjúkdóminn. Nú getur fólk kannað hvort það sé smitað, með einföldu munnvatnsprófi sem upplýsir á 20 mínútum hvort fólk sé smitað eða ekki. Erlent 27.6.2006 22:00
Áfram verður réttað yfir Saddam Saddam fær að sitja áfram undir réttarhöldum út af ódæðisverkum í forsetatíð hans. Hæstiréttur í Bagdad tilkynnti í dag að réttarhöld yfir Saddam Hussein vegna helfarar gegn Kúrdum í Anfal-héraði muni hefjast í ágúst þegar áætlað er að réttarhöldunum vegna Dujail sem nú standa yfir verði lokið. Erlent 27.6.2006 20:30
Rice í heimsókn í Pakistan Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleeza Rice, kom í dag í heimsókn til Pakistans, en hún mun funda með Musharraf, forseta Pakistans á morgun. Rice sagðist myndu ræða við Musharraf um það hvort hann ætlaði ekki örugglega að standa við loforð sitt um að halda lýðræðislegar kosningar á næsta ári. Erlent 27.6.2006 20:00
Hamas bera til baka fréttir um viðurkenningu Ísraelsríkis Hamas-liðar segja samkomulag fylkinganna Hamas og Fatah sem tilkynnt var í dag ekki fela í sér nokkra viðurkenningu Hamas-samtakanna á Ísraelsríki. Samkomulagið miðar að því að stöðva innbyrðis átök Palestínumanna af gagnstæðum fylkingum. Samkomulag flokkanna hefur ekki enn verið gert opinbert í heild sinni. Erlent 27.6.2006 19:47
Japansforsætisráðherra heimsækir kónginn í Graceland Forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, kom í dag í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna og Kanada. Hann mun ræða við fyrirmenn þar um Norður-Kóreu, öryggismál, efnahagsmál, - og um Elvis Presley. Erlent 27.6.2006 19:30
Evrópuráðið gagnrýnir leynifangelsin Evrópuráðið gagnrýndi harðlega í ályktun sinni í dag þau lönd sem rekið hafa leynifangelsi eða heimilað fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA um lofthelgi sína. Erlent 27.6.2006 18:30